140. löggjafarþing — 57. fundur,  15. feb. 2012.

fundarstjórn.

[16:21]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir að taka vel í þá ósk okkar í stjórnarandstöðunni að kallað verði hið fyrsta til fundar út af þessu mikilvæga máli. Það er ansi merkilegt að ríkisstjórn Íslands virðist núna hafa verið dæmd af Hæstarétti miðað við fréttir (Gripið fram í.) til þess að ganga frekar til móts við skuldug heimili. Fólk hefur þurft að leita réttar síns til að leiðrétta stökkbreytt lán sín.

Ég fagna því að við förum yfir málið í efnahags- og viðskiptanefnd. Þetta eru miklar fjárhæðir sem um er að ræða. En ég vil minna á að í aðdraganda þess að lögin voru samþykkt vöruðum við framsóknarmenn ítrekað við því að farið yrði í þessa lagabreytingu. Nú er það að koma á daginn að meiri hlutinn á Alþingi virðist hafa gert mjög alvarleg mistök sem hafa bitnað á fjölda íslenskra heimila, því miður.