fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir að það skuli núna vera búið að boða til fundar í efnahags- og viðskiptanefnd klukkan fimm. Ég vil hins vegar líka kalla eftir því að sett verði sem fyrst á dagskrá þingsins skýrsla frá hendi annaðhvort hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra eða forsætisráðherra þar sem farið væri í gegnum vinnubrögðin varðandi þessa lagasetningu, hvað dómurinn þýðir fyrir íslenskt efnahagslíf og hvað hann þýðir fyrir íslensk heimili.
Ég vil líka ítreka að það er ekki þannig að með þessum dómi sé búið að skýra alla þætti sem varða gengistryggðu lánin. Það á enn eftir að svara hvernig hann snertir skattalögin, bókhaldslög, skráningu ökutækja, og ýmislegt fleira sem ríkisstjórnin hefur verið að ýta á undan sér, sem meiri hlutinn á þingi hefur algjörlega hunsað.