140. löggjafarþing — 58. fundur,  16. feb. 2012.

reglubundnar árlegar heimsóknir til eldri borgara í forvarnaskyni.

21. mál
[11:22]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er einkar ánægjulegt að þetta mál skuli vera mitt fyrsta mál sem talsmanns. Það virkar kannski ekki mjög stórt en ég held að það geti skipt eldri borgara virkilega miklu máli. Við leggjum líka mikla áherslu á að þetta verði unnið í góðu samstarfi við sveitarfélögin sem fara með þessa þjónustu.

Tillagan gengur raunar út á það að bjóða upp á reglulegar árlegar heimsóknir til allra þeirra sem hafa náð 75 ára aldri í því skyni að veita þeim upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er til að fólk á þessum aldri geti búið sem lengst heima. Það er stefna núverandi stjórnvalda og þeirra ríkisstjórna sem hafa setið í þó nokkurn tíma þar á undan að við reynum að tryggja að fólk geti búið heima hjá sér sem allra lengst. Þetta verður hluti af því.

Við vinnslu málsins lögðum við líka mjög mikla áherslu á að þetta væri valkvæð þjónusta (Forseti hringir.) til að tryggja rétt einstaklinganna til að hafa um það að segja hver kemur heim til þeirra en við teljum að það sé mjög jákvætt og muni bæta þjónustuna. Ég hvet þingmenn eindregið til að styðja málið.