staða lífeyrissjóðanna, munnleg skýrsla fjármálaráðherra.
Virðulegur forseti. Það má vera að ég hafi ekki orðað svar mitt nægilega skýrt áðan, en Alþingi samþykkti 28. september 2008 eftirfarandi:
„[Að fram fari] sjálfstæð og óháð rannsókn á starfsemi lífeyrissjóða á Íslandi frá setningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, og síðar. Í kjölfar þess fari fram heildarendurskoðun á stefnu og starfsemi lífeyrissjóðanna.“
Það sem ég var að reyna að segja er að frá því þessi þingsályktunartillaga var samþykkt hefur mjög margt gerst. Meðal annars hefur þessi rannsókn komið fram. (Gripið fram í.) Það hafa verið gerðar margar breytingar á lögunum. Settar hafa verið á laggirnar stórar nefndir hagsmunaaðila sem eru að gera það sama, þ.e. að vinna að heildarendurskoðun á starfsemi lífeyrissjóðanna. Þegar rannsóknarspurningar eru settar niður og umfang og efnistök rannsóknar eru ákveðin, verður að taka tillit til þeirra upplýsinga og þess starfs sem hefur átt sér stað á þessum tíma, frá 28. september 2010 til dagsins í dag. Það var það sem ég var að reyna að segja. Ég vil að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki þetta til athugunar og telji hún að ástæða sé til að gera frekari rannsóknir, leggur hún fram skilgreiningar og tillögur um það.
Virðulegur forseti. Varðandi seinni spurningu hv. þingmanns segi ég alveg eins og er að ég hef ekki gert upp við mig hvernig ég sé þetta kerfi fyrir mér. Ég hef ekki legið yfir því og skoðað allar hliðar. Einn maður, eitt atkvæði, hljómar ákaflega vel í mínum eyrum (Forseti hringir.) og betur en að standa eigi fjármagn á bak við atkvæði. Ég er tilbúin til að ræða þetta síðar og gefa mér til þess lengri tíma.