140. löggjafarþing — 58. fundur,  16. feb. 2012.

staða lífeyrissjóðanna, munnleg skýrsla fjármálaráðherra.

[15:15]
Horfa

Magnús M. Norðdahl (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst aðeins um lýðræðið. Það kostar mikla og langa umræðu að fjalla um það og þingmaðurinn nefndi það raunar í sinni fyrstu ræðu að það væri alls ekki einfalt mál hvernig farið yrði með það. En innan lífeyrissjóðanna gildir það sem kallað er fulltrúalýðræði, og sem stærsta lýðræðisríki veraldar er nú býsna stolt af og lýðræðisríkið Ísland líka, vegna þess að í krafti fulltrúalýðræðis kýs til dæmis Alþingi í hinar og þessar stjórnir, gerði það áður í bankaráð, gerir það í Byggðastofnun, og hingað og þangað. Fulltrúalýðræðið er því ágætt og virkar fullkomlega þannig að það er ekkert þess vegna sem mælir með því að kosið sé beinni kosningu. Þetta er miklu flóknara mál en svo að hægt sé að fara í umræðu um það í einföldu andsvari.

Ekki má misskilja það sem ég sagði áðan um rannsóknina. Ég er alveg fullkomlega sammála þeim sem hér hafa talað um nauðsyn þess að skoða þetta mál mjög vel og gera það eins vel og hægt er. Ég tel að það sé ágætlega komið í umræðu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að fjalla þá um hvert framhald málsins yrði.

Aðeins vegna þess sem nefnt var áðan, hvaða breytingar hefðu verið gerðar á þessu umhverfi. Sumar þeirra hafa komið í gegnum kjarasamninga, það er rétt. En ég held ég muni það rétt að einn hv. þingmaður, Pétur H. Blöndal, hafi íhugað í skamma stund að segja af sér vegna þess að Alþingi gerði breytingar á þeim lögum sem ekki voru til mjög góðs. Mér er því til efs að frumkvæði Alþingis til breytinga á lögum um lífeyrissjóði hafi verið nokkrum til góðs og skýri kannski hluta af því tapi sem þeir urðu fyrir.