staða lífeyrissjóðanna, munnleg skýrsla fjármálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að margar spurningar vöknuðu undir ræðu hv. þingmanns. Sú síðasta sem kom í kollinn var: Er ég virkilega að heyra rétt, er hv. þingmaður að verja það kerfi með kjafti og klóm sem hefur verið í stjórnum lífeyrissjóðanna á almennum markaði? Að þarna séu fáir einstaklingar sem ráði öllu — vill hv. þingmaður hafa það þannig áfram? Vill hv. þingmaður ekki breyta neinu um það hvernig kosið er í stjórnir lífeyrissjóðanna? Eiga aðilar vinnumarkaðarins, lífeyrissjóðanna og fjármálageirans áfram að hafa þau miklu tengsl sem þar eru, er ekkert óeðlilegt við það?
Mig langar líka að spyrja hv. þingmann, af því að mér fannst hann skauta svolítið létt yfir þessa 479 milljarða: Standa sjóðirnir undir þessu tapi? Ég bið hv. þingmann að útskýra það fyrir mér ef hann getur á þessum stutta tíma.
Mig langar líka að spyrja hv. þingmann: Hver er að hans mati ábyrgð þeirra sem stjórnuðu lífeyrissjóðunum á þessum fjárfestingum? Mikið er talað um ábyrgð í samfélaginu og gjarnan sagt að draga eigi hina og þessa til ábyrgðar fyrir hitt og þetta. Ég held að það væri ágætt ef hv. þingmaður, sem hefur meiri innsýn en margur í þetta kerfi allt saman, mundi upplýsa okkur um þetta.
Ég ætla að vera ósammála hv. þingmanni þegar hann talar um góðan árangur og góðan rekstur lífeyrissjóðanna, þegar maður sér hjá nánum ættingjum hvernig hinir almennu lífeyrissjóðir hafa skert og skert á ný greiðslurnar sem fólkið fær. Það ber ekki vott um að vel hafi verið haldið á spöðunum að mínu viti. En það er hins vegar rétt og þar er ég sammála hv. þingmanni, að munurinn á aðstöðu þeirra sem fá úr opinberu sjóðunum og almennu er ekki í lagi. Meðan verið er að skerða hjá þeim sem fær greitt úr almennu sjóðunum, eins og ég þekki dæmi um, fær annar einstaklingur á sama heimili alltaf sömu krónutöluna, alveg sama hvað gengur á. (Forseti hringir.) Þetta þarf að laga með einhverjum hætti en það þarf að gera það í sátt.