endurútreikningur lána og nauðungarsölur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Svarið er mjög einfalt: Jú, þetta er einmitt eitt af því sem nú þarf að fara yfir með alveg sama hætti og menn gerðu á sínum tíma og reyndu að tryggja réttarstöðu manna eins og kostur var í samræmi við fallinn dóm um ólögmæti gjaldeyristryggingar lána. Lögin frá því í desember 2010 opnuðu þar ýmis úrræði, eða það var að minnsta kosti hugsun löggjafans. Það er dapurlegt að heyra, sem ég hef ekki heyrt áður, að þetta hafi ekki gagnast mönnum og að dómstólar hafi vísað þessu frá og þá kannski á grundvelli þess að þetta hafi ekki verið nægjanlega afdráttarlaust orðað, að það tæki þá til hvers konar fullnustugerða, þar með talið nauðungarsölu eða slíkra hluta, því að ég efast ekki um að það hafi verið hugsun löggjafans á sínum tíma.
Það hefur þegar verið rætt á þeim samráðsvettvangi sem nú hefur verið myndaður til að greina niðurstöður dómsins og fara yfir næstu skref í málinu. Eitt af því sem kemur að sjálfsögðu aftur til skoðunar er aðgerðir af þessu tagi að einhverju leyti nú, eins og menn ætluðu sér að grípa til í hið fyrra sinn, til að auðvelda mönnum að ná að fullu fram rétti sínum á grundvelli þess sem Hæstiréttur hefur nú dæmt. Ég tek undir það með hv. þingmanni að að sjálfsögðu ber mönnum nú skylda til að fara algjörlega yfir það að gera þær ráðstafanir sem mögulegar eru að því marki sem þetta liggur þá skýrt fyrir, að menn njóti réttar síns eins og hann hefur nú verið dæmdur í samræmi við úrvinnslu þessara mála.
Það kann vel að vera að opna þurfi þetta eða hliðstæð ákvæði upp aftur eða og síðan, eins og hér var reyndar rætt fyrr í þessum fyrirspurnatíma, hvort fara þurfi að yfir það að tryggja flýtimeðferð einhverra prófmála fyrir dómstólum.