hjúkrunarrými og lyfjakostnaður.
Hæstv. forseti. Fullyrðingar komu fram í viðtali um að valið væri úr í hópi þriggja eftir því hversu kostnaðarsamt fólk væri þegar það kæmi inn á hjúkrunarheimili. Þetta er algjörlega nýtt í umfjölluninni og leiðir til þess að kalla þarf eftir því með hvaða hætti menn vinna þetta. Hingað til hefur þetta verið þannig og hefur verið svo í áratug eins og hér kom fram að borguð eru daggjöld vegna hjúkrunarheimila og ekki er reynt að flokka eftir því hvort mikið þarf að þrífa eftir fólk, hversu veikt það er, hvort það er með alzheimer eða ekki. Svokallað RAI-mat liggur til grundvallar því hversu mikið viðkomandi stofnun fær. Það er algjörlega siðlaust að mínu mati ef fara á að flokka einstaklinga eftir þessu því að þá er hægt að fara endalaust út í það að skilgreina nákvæmlega hvernig fólk menn vilja fá inn á hjúkrunarheimilin og hvernig fólk þeir vilja ekki fá.
Það hafa líka komið fram mjög sterk viðbrögð frá öðrum heimilum sem hafa algjörlega afneitað þessu, m.a. á Suðurlandi þar sem menn segja að matsnefndirnar gefi ekki einu sinni upp hvort viðkomandi sé með þunga lyfjagjöf eða ekki. Eftir sem áður þurfum við að ræða þetta. Það hefur verið ákveðinn misskilningur varðandi S-merktu lyfin eða þessi sérstöku lyf sem geta verið mjög kostnaðarsöm, að þau séu greidd á spítölum en ekki á hjúkrunarheimilum sérstaklega. Einstaklingar eru aldrei látnir borga lyf svo það sé á hreinu, það er ekki verið að færa kostnaðinn yfir á þá. Þetta eru hjúkrunarheimili sem eru þá greinilega að nota sér aðstöðuna og reyna að komast hjá því að borga slíkan kostnað. Það er dapurlegt að heyra það frá heimilum sem eru með allt að 500 vistmenn að þau ætli að fara að láta það ráðast af einstökum aðilum, að tína út einstaklinga sem þeir telja þunga. Ég fordæmi þá aðferð og treysti á að við getum farið eftir þeim samþykktum sem þingið gerir um kostnaðinn, daggjöldin, hvort sem það eru hjúkrunarrými eða dvalarrými.
Niðurskurðurinn hefur verið ákveðinn hér, við búum við (Forseti hringir.) veruleika þar sem við töpuðum mjög miklu og höfum orðið að aðlaga okkur að því. Það hafa flest heimilin gert með miklum myndarbrag.