140. löggjafarþing — 59. fundur,  21. feb. 2012.

starfsumhverfi sjávarútvegsins.

[14:29]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (U):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að taka upp þráðinn frá fyrri ræðumanni, hv. þm. Þór Saari og vara einmitt við því að menn sjái ofsjónum yfir aukinni og betri framlegð í sjávarútvegi, vegna falls krónunnar. Það er að mörgu leyti mjög óheppilegt vegna þess að fall krónunnar kemur niður á almenningi og aukin framlegð í sjávarútvegi sem slíkum er ekki endilega besta leiðin til að takast á við vandann sem nú er fyrir hendi sem er mjög mikið atvinnuleysi vegna þess að sjávarútvegurinn er auðvitað bundinn takmörkunum. Ég vil í upphafi máls míns og á þessum tveimur mínútum sem ég hef, reyna að fá menn til að opna aðeins augum fyrir því að fara kannski ekki endilega með himinskautum þegar þeir tala um gríðarleg sóknarfæri í sjávarútvegi. Við veiðum takmarkaða stærð, uppgangur í sjávarútvegi er bundinn kvóta.

Engu að síður er staðan ágæt í sjávarútvegi og mér finnst rétt eins og málshefjandi gerir að tala um sjávarútvegsklasann í heild sinni. Mér finnst mjög mikilvægt að til að sjávarútvegsklasinn fari að fjárfesta meira og auki þar með atvinnu í landinu og verði sá vaxtarsproti sem hann getur orðið, sé óvissu eytt.

Ég held að óvissa hafi ríkt í sjávarútvegi en ég er líka sammála málshefjanda þegar hann segir að mjög ríkar forsendur séu fyrir sátt í sjávarútvegi. Ég held að það hafi til dæmis verið mikið framfaraskref þegar menn urðu sammála um að réttur til veiða ætti að vera tímabundinn vegna þess að það er svolítið erfitt að segja að þjóðin eigi auðlindina en rétturinn sé síðan ótímabundinn; þá er erfitt að útskýra hvað felst í eignarhaldi þjóðarinnar. Það skref hefur því náðst. Allir aðilar eru sammála um að rétturinn eigi að vera tímabundinn og þá er bara að ákveða hversu lengi hann eigi að gilda. Svo eru menn sammála um að arðurinn skuli renna til þjóðarinnar með réttmætum hætti. Síðan myndaðist líka merkileg sátt í þingsal þegar eiginlega allir voru á móti frumvarpi hæstv. fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og ég held að hægt sé að byggja mikið á … (Gripið fram í: Meira að segja þeir sem lögðu það fram.) Meira að segja þeir sem lögðu það fram. Það var merkileg sátt sem myndaðist í þingsal og ég held að vel sé hægt að byggja á henni.