starfsumhverfi sjávarútvegsins.
Virðulegi forseti. Við ræðum starfsumhverfi sjávarútvegsins. Allir geta verið sammála um að við viljum búa greininni öruggt rekstrarumhverfi og lagaumgjörð, að gjaldtaka sé eðlileg og aðgengi að fiskimiðunum, menntun í greininni og að greinin geti boðið góð laun til sjós og lands.
Það vekur óneitanlega athygli að síðustu 20 ár hafi ekki verið hægt eða ekki vilji til að samþætta rekstrarlega hagkvæmni, byggðasjónarmið, samfélagssjónarmið og nýliðun í greininni ásamt því að þjóðin fengi eðlilega rentu af. Það að greinin standi frammi fyrir gífurlegri skuldasöfnun og að mikið útflæði hafi verið úr greininni undanfarin ár segir manni að núverandi fiskveiðilöggjöf er ekki í lagi. Það þarf að tryggja öruggt starfsumhverfi og eðlilega nýliðun í greininni ásamt jafnræði.
Það var engin framleiðniaukning í útgerð frá 1991 til 2007. Er það í lagi? Þrátt fyrir að veruleg samþjöppun veiðiheimilda væri á sama tíma og framleiðniaukning í fiskvinnslu. Skuldir sjávarútvegsins ruku upp í 400 milljarða frá 1997 til 2008 og var ekki hægt að skýra það af því að greinin hefði fjárfest í skipum og tækjum og búnaði, heldur skýrðist það fyrst og fremst af því að veiðiheimildir gengu kaupum og sölum innan greinarinnar. (Gripið fram í: … til hagræðingar.) Eftir hrun hefur þurft að afskrifa í sjávarútveginum háar fjárhæðir. Sem betur fer gengur greininni vel og skýrist það af gengi og háu verði á mörkuðum, en það þarf eitthvað að gera. Þessi mikla verslun með aflaheimildir innan greinarinnar er ekki eðlileg. Það er miklu eðlilegra að arðurinn af greininni skili sér til þjóðarinnar og í vasa hennar en að einstakir aðilar séu að „víla og díla“ með þetta fjöregg þjóðarinnar. (Forseti hringir.) Þess vegna viljum við fá nýtt kerfi.