starfsumhverfi sjávarútvegsins.
Frú forseti. Það hefur verið athyglisvert að heyra hér að flestir ræðumenn telja að hægt sé að ná sátt um sjávarútveg svo lengi sem LÍÚ fái að ráða ferðinni. Þannig hefur það verið í áratugi (Gripið fram í.) en slík sátt mun aldrei nást. Slík sátt þarf að koma frá Alþingi og hún þarf að koma frá stjórnmálamönnum sem eru fulltrúar almennings.
Það þarf að færa aflaheimildirnar frá fáum útvöldum til sveitarfélaga í samræmi við þá veiðireynslu sem var til staðar þegar kvótakerfinu var komið á. Það er eina réttláta skiptingin á aflaheimildunum. Þar má bjóða þær upp, þar hafa allir aðgang að þeim, þannig er hagkvæmnin best tryggð. Að allur afli fari á markað er næstmikilvægasta atriðið, að útgerðir landi öllum afla á markaði eða að hann fari inn í eigin fiskvinnslur á því markaðsverði sem fyrir er hverju sinn þannig að fullt gagnsæi sé um alla verðmyndun í greininni. Það tryggir líka bestu hagkvæmnina.
Það þarf að tryggja áframhaldandi viðgang sjávarbyggða með slíkum breytingum á kvótakerfinu. Það færir þeim tekjur, það færir þeim atvinnu og það tryggir byggð um allt land. Söfn og Byggðastofnun munu ekki tryggja byggð og atvinnu um allt land. Við höfum einfaldlega reynslu af því og það er kominn tími til að snúa við af þeirri braut og færa sjávarbyggðunum þau atvinnutækifæri sem þau höfðu í aldir til að þau geti haldið áfram að lifa og dafna.
Við þurfum byggð og atvinnu um allt land handa almenningi og fólkinu sem þar býr frekar en þyrlur fyrir einstaka menn sem setja arðinn af auðlind þjóðarinnar í eigin vasa.