140. löggjafarþing — 59. fundur,  21. feb. 2012.

breytingartillaga og kostnaðarmat við 6. mál.

[14:57]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins greina frá tvennu út af þeim umræðum sem hér eru. Þegar ég tala fyrir þessu nefndaráliti og breytingartillögum mun ég gera ráð fyrir kostnaðarmati. Ég vil einnig taka fram að allir flutningsmenn þingsályktunartillögunnar sem Þór Saari var 1. flutningsmaður hafa verið spurðir og hafa samþykkt að þetta verði flutt svona. Ef einhver spurning er um það, þá stend ég við svarið.