breytingartillaga og kostnaðarmat við 6. mál.
Virðulegur forseti. Ég ætla mér ekki í þá umræðu að ein skoðun sé annarri æðri í þessu máli, en ég kalla eftir úrskurði forseta um það hvort spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til ráðsins muni liggja fyrir hér fyrir okkur þingmenn áður en umræðan hefst.
Að gefnu tilefni vegna orða hv. þm. Lúðvíks Geirssonar þá er ég ein af þeim þingmönnum sem vilja að stjórnarskráin sé skoðuð þó að ég sé ekki hlynnt því frumvarpi að öllu leyti sem liggur fyrir og er hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég bið því menn, áður en þeir draga fólk í dilka eftir því hvort það er með eða á móti, að virða það að skoðanir geta verið ólíkar í þessu máli, frú forseti, sem og öðrum. En ég óska eftir því að forseti kveði upp úrskurð um það hvort við fáum þessar spurningar og tillögur frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd áður en umræðan fer fram.