meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið er hér til umræðu breytingartillaga við 6. mál á þskj. 6. Það eina sem stendur í raun eftir af fyrri tillögu er nafn hennar, þ.e. tillaga til þingsályktunar um meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga. Það er það eina sem stendur eftir af því máli, svo mjög er búið að breyta tillögugreininni.
Upphaflegir flutningsmenn tillögunnar voru hv. þingmenn Þór Saari, Róbert Marshall, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Þráinn Bertelsson, Guðmundur Steingrímsson og Davíð Stefánsson. Það er eftirtektarvert að þessir aðilar sem láta sér svo annt um stjórnarskrána gefa sér ekki tíma til að sitja í þingsal og fylgjast með umræðum. Vel má vera að þeir séu staddir annars staðar í húsinu, en þeir gæfu að minnsta kosti gott fordæmi ef þeir sætu í þingsal til að hlusta á umræðuna, því þetta er jú grafalvarlegt mál. Hér er verið að leggja til breytingar á stjórnarskránni.
Til að fara yfir það sem fram hefur komið fyrr í dag um breytingarnar á þessum tillögugreinum langar mig, með leyfi forseta, að fara aðeins yfir það í fjórum liðum hvernig þessir aðilar sáu fyrir sér það ferli sem ætti að taka við eftir að stjórnlagaráð afhenti Alþingi fullnaðarskýrslu þann 29. júlí 2011 og hafði þar með lokið störfum samkvæmt lögum.
Í fyrsta lagi átti að taka frumvarpið, sem stjórnlagaráðið átti að skila eigi síðar en 1. nóvember 2011, á dagskrá og ræða það sem skýrslu, því að enginn hv. þingmaður treysti sér til að leggja það fram í frumvarpsformi eins og frumvörp verða að koma fyrir þingið. Ákveðið var því að breyta því í skýrslu og ræði ég því einungis um skýrslu héðan í frá. Síðan átti að vísa skýrslunni til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem mundi leita til sjö manna sérfræðinefndar sem hafði áður verið kosin af þinginu, svokallaðrar stjórnlaganefndar. Eins og menn muna sem fylgdust með því þegar stjórnlagaþing sjálft var til umræðu, var í kjölfarið skipuð stjórnlaganefnd til undirbúa og skipuleggja þjóðfund og jafnframt að gera tillögur til stjórnlagaþings um drög að því hvernig stjórnarskrá ætti að líta út.
Skemmst er frá því að segja að aðilar úr stjórnlaganefnd komu fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eftir að málið var komið til þeirrar nefndar og bentu stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vinsamlegast á að þeir sjö aðilar sem voru í þessari nefnd litu svo á að þeir hefðu þegar skilað af sér sínu verki og búið væri að leggja nefndina niður samkvæmt lögum. Þeir vildu því ekki koma að frekari vinnu þessa máls, þetta væri túlkun þeirra. Ekki datt nokkrum manni í hug að leggja þá fram tillögu um að endurreisa nefndina, eins og nú er lagt til að gera með stjórnlagaráð, því Alþingi verður jú að vera samkvæmt sjálfu sér.
Þá vík ég aftur að upphaflegu tillögunni sem var hér lögð fram til umræðu. Í henni kom fram að eftir að stjórnlaganefndin hefði lagt heildstætt mat á frumvarpið sem grunn að nýrri stjórnarskrá frá stjórnlagaráði, ætti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndin að leggja fram tillögur að breytingum fyrir stjórnlagaráð, því að samkvæmt tillögunni átti að endurreisa það. Svo átti nefndin að standa fyrir kynningu á frumvarpinu, sérstaklega í samvinnu við RÚV og aðra fjölmiðla. Síðan átti stjórnlaganefnd að afhenda stjórnlagaráði skýrslu um kynningarferlið og fara með málið í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta var afar flókið og langt ferli, en ég les hér upp úr þessari tillögu.
Svo átti stjórnlagaráðið, eftir þá þjóðaratkvæðagreiðslu, að gera tillögu til Alþingis um frumvarpið, að fara aftur í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Svona var ferillinn, afar langur og allar stofnanir í raun endurreistar sem höfðu áður komið að þessari vinnu, eftir að Hæstiréttur úrskurðaði stjórnlagaþingskosninguna sjálfa ógilda. Það er grunnurinn sem þetta mál byggir allt saman á, það var ákveðið að kjósa einstaklinga á ráðgefandi stjórnlagaþing, ekki bindandi stjórnlagaþing eins og Framsóknarflokkurinn lagði til. Það kom í ljós þegar farið var að skoða betur þá tillögu og ósk Framsóknarflokksins um bindandi stjórnlagaþing, að það var ekki heimilt samkvæmt stjórnarskrá, það var einfaldlega ekki hægt. Þannig að úr varð að þetta átti að verða ráðgefandi stjórnlagaþing og allir muna þann dag þegar Hæstiréttur úrskurðaði með öllum greiddum atkvæðum allra dómara í fjölskipuðum rétti Hæstaréttar að kosningin væri ógild.
Þá fór ríkisstjórnin af stað með þessar æfingar og við erum enn þá stödd í þeim æfingum, því engin niðurstaða virðist vera komin í sjónmál. Ríkisstjórnin og meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sér ekki til lands í málinu eins og kom bersýnilega fram í framsöguræðu formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, hv. þm. Valgerðar Bjarnadóttur, því í andsvari við mig svaraði hún því hvaða efnisgreinum mætti hugsanlega beina til stjórnlagaráðsins. Hvers vegna kom það ekki fram í framsöguræðunni? Og hvers vegna kom ekki fram í þingsályktunartillögunni sjálfri og breytingartillögunum hver kostnaðurinn væri? Við erum að fá það inn í smáskömmtum hvernig þetta á hugsanlega að vera, en samt er gert ráð fyrir því, samkvæmt þingsályktunartillögunni, að stjórnlagaráð eigi að koma saman fyrstu helgina í mars; föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag. Stjórnlagaráð á að fá langa helgi til að fara yfir þetta á ný. Talandi um að það hafi verið lítill tími fyrir stjórnlagaráðið að fá fjóra mánuði í sumar til að vinna að þessu, þá eru fjórir dagar náttúrlega enn þá hlægilegri tími því að það er rétt hægt að koma fólki saman og ræða létt um málin. Það sjá það náttúrlega allir sem vanir eru fundarvinnu að fjórir dagar eru ekki nokkur tími til að fara yfir svo umfangsmikið mál — svo umfangsmikið að Lagastofnun Háskóla Íslands taldi sig þurfa ár til að fara yfir tillögurnar.
Hvað um það. Ég ætla nú að koma að þeirri breytingartillögu sem liggur fyrir þinginu og sýna fram á hvað þessar tillögur eru algjörlega óskyld mál og ekkert stendur eftir nema nafnið á þingsályktunartillögunni. Samkvæmt breytingartillögunni sem lögð er fram í nafni hv. þingmanna Valgerðar Bjarnadóttur, Róberts Marshalls, Lúðvíks Geirssonar, Margrétar Tryggvadóttur, Magnúsar Norðdahls og Davíðs Stefánssonar, skal tillögugreinin orðast á þann hátt, með leyfi forseta:
„… verði stjórnlagaráð, sem skipað var af Alþingi 24. mars 2011, kallað saman að nýju til sérstaks fjögurra daga fundar í byrjun mars til að fjalla um spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mögulegum breytingum á frumvarpinu, sem og um aðra þætti í frumvarpinu sem ráðinu þykir þurfa. […]
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd geri tillögu til Alþingis um að tillögurnar í heild,“ — sem ráðið kemst að eftir þennan fjögurra daga fund — „með breytingartillögum stjórnlagaráðs ef við á, ásamt spurningum um helstu álitaefni verði bornar upp í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu …“
Frú forseti. Þarna er himinn og haf á milli, en samt hefur forseti Alþingis úrskurðað að um sömu tillögu sé að ræða og málið þingtækt að því leyti. Ef þetta er ekki að bera saman epli og appelsínur þá veit ég ekki hvað. Svona hefur, fyrirgefðu, frú forseti, sá forseti Alþingis sem nú situr haldið á málum í krafti ægivalds þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. Ég minni enn og aftur á og leiðist það ekki að Alþingi á að vera sjálfstætt gagnvart framkvæmdarvaldinu og Alþingi á að vera óháð samkvæmt stjórnarskránni og á ekki að taka við skipunum frá framkvæmdarvaldinu.
Ég er orðin mjög óttaslegin um stöðu Alþingis, vegna þess að maður sér í máli eftir máli vaðið yfir löggjafann eins og ekkert sé vegna krafna frá framkvæmdarvaldinu. Hér hefur öllu verið snúið við. Ég minni enn og aftur á að þetta mun ekki breytast fyrr en stofnuð verður lagaskrifstofa við þingið og þingið gert sjálfstætt gagnvart framkvæmdarvaldinu, bæði faglega og ekki síst fjárhagslega, því að framkvæmdarvaldið tútnar út sem aldrei fyrr en sífellt er skorið niður við Alþingi. Þessu verður að breyta og ég hef sagt það áður úr þessum ræðustól að því verður breytt þegar Framsóknarflokkurinn kemst í ríkisstjórn, því við þetta má ekki una, sérstaklega í ljósi þess að við sitjum undir árás frá Evrópusambandinu sem er að reyna að komast að auðlindum okkar með þau markmið í huga sem við þekkjum. Í máli hæstv. utanríkisráðherra í dag kom alveg nákvæmlega fram hvert það mál er komið. Það er komið langtum lengra en nokkurn gat órað fyrir, enda liggja fyrir í þeirri skýrslu sem stjórnlagaráð sendi til Alþingis margar breytingar sem snúa beint að þeirri staðreynd að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu liggur inni og fór ég yfir það áðan. Ég nefni til dæmis ákvæðið um fullveldisframsalið, því að við getum ekki gengið í ESB nema með því að breyta ákvæðinu um fullveldisframsal. Í umhverfisverndarkaflanum er ákvæði um kæruaðild samkvæmt Árósasamningnum sem leyfir öllum aðilum að sækja rétt sinn hér á landi í umhverfismálum Svo er það sú meginkrafa sem Evrópusambandið setur einnig að Ríkisendurskoðun skuli njóta sjálfstæðis í stjórnarskrá.
Frú forseti. Í þessum skýrslum er einnig að finna ákvæði um dýr. Þegar ég lærði stjórnskipunarrétt lærði ég hann á þann hátt að stjórnarskrá hvers ríkis ætti að verja þegnana fyrir ofurríki framkvæmdarvaldsins og þeirra stjórnvalda sem ríktu í ríkinu hverju sinni.
Sú skýrsla sem nú liggur fyrir þinginu er komin langt út fyrir það sem stjórnarskrá á að fjalla um og svo ég vitni í virtan lagaprófessor, Sigurð Líndal, þá er ég honum sammála þegar hann segir að stjórnarskrá eigi að vera á örfáum blöðum. Stjórnarskrá á ekki að vera á milli 100 og 150 lagagreinar. Stjórnarskrá á fyrst og fremst að vera skýr og skiljanleg þeim sem fara eftir henni. Mig langar að spyrja, úr því enginn hæstv. ráðherra situr í salnum, vegna þess að þessi breytingartillaga er víst gjaldið fyrir áframhaldandi setu þeirra, hvernig væri nú fyrir þá ráðherra að fara að núgildandi stjórnarskrá áður en farið er að umbylta þeirri gömlu. Ég minni á að daginn eftir að þetta mál var tekið út úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafði Hæstiréttur enn á ný dæmt þessa ríkisstjórn af verkum hennar fyrir brot á stjórnarskrá.
Virðulegi forseti. Er ekki nokkuð skýrt að ríkisstjórn sem getur ekki farið að stjórnarskrá sem telur tæplega 80 lagagreinar getur ekki farið að stjórnarskrá sem telur tæpar 120? Það er augljóst. Ríkisstjórnin verður að fara að gildandi stjórnarskrá áður en litið er við því að semja aðra.
Í máli framsögumanns nefndarálitsins, hv. þm. Valgerðar Bjarnadóttur, kom fram hvert kostnaðarmatið væri. Ég hef kallað mjög eftir svörum við því í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvað þetta kostar hugsanlega fyrir skattgreiðendur, í viðbót við þær þúsund milljónir sem þegar hafa verið lagðar í þetta verkefni, þetta stjórnarskrárferli eins og hæstv. forsætisráðherra segir á hátíðarstundum. Þúsund milljónir af skattfé landsmanna eru farnar í þetta og málið er enn þá úti í skurði og ríkisstjórnin í miklum vandræðum með hvernig eigi að ljúka því.
Í máli þingmannsins kom fram að kostnaðurinn væri hugsanlega á milli 7 og 10 milljónir. Virðulegi forseti. Ég vísa þessu á bug. Kostnaðurinn er stórkostlega vanmetinn því það ferli sem er verið að setja af stað með þessari breytingartillögu kostar mun meira. Kostnaðurinn við það að kalla stjórnlagaráð saman á ný með launakostnaði, húsnæðiskostnaði, hótel-, fæðis- og starfsmannakostnaði og öllu sem til heyrir er kostnaði, fæðiskostnaði, starfsmannakostnaði, og öllu því sem til heyrir, er varlega áætlaðar 7–10 milljónir. Þeim tölum er slegið fram til að blekkja þingheim og landsmenn því að það á eftir að taka inn í þetta lokahnykkinn á ferlinu og kostnaðarmat á sjálfri þjóðaratkvæðagreiðslunni sem lögð er til í breytingartillögunni. Það er vitað að þjóðaratkvæðagreiðsla kostar á bilinu 250–300 milljónir. Hér er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram samhliða forsetakosningum og eitthvað sparast þannig vegna samlegðaráhrifa.
Ég vil minna á það að meiri hlutinn leggur til að fimm til sex atriði verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjöunda atriði verður jafnvel plaggið í heild sinni, það fer eftir því í hvaða skapi meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verður þegar þetta verður ákveðið. Þetta kallar á stórkostlega aukinn mannafla í kjördeildir. Við munum hvernig þetta var þegar stjórnlagaþingskosningar fóru fram. Settir voru upp pappaveggir og fjölgað var til muna öllum þeim sem voru í kjördeildum og kjörstjórnir ræstar út, eðlilega, enda um kosningu að ræða. Þannig að það á eftir að telja mikinn kostnað, fyrir utan kostnaðinn við það ákvæði sem er í c-lið breytingartillögunnar, með leyfi forseta:
„Alþingi skal standa fyrir víðtækri kynningu á efni þeirra tillagna og spurninga sem bornar verða upp í þjóðaratkvæðagreiðslu, sbr. 6. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.“
Virðulegi forseti. Hér er ekki búið að slá á þann kostnað sem fellur til vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar sjálfrar né þess kynningarefnis sem Alþingi er falið að senda út og auglýsingahernaðar sem það á að standa fyrir vegna þessa máls.
Þess vegna er mjög óábyrgt að formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar skuli koma fram og slá upp tölunum 7–10 milljónir. Það sýnir enn frekar hversu illa málið er undirbúið að það hefur ekki farið til fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins til frekari útreikninga til að leggja mat á kostnaðinn. Þetta er bara enn einn óútfylltur tékkinn, en við erum svo sem vön því á þingi. Hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra hefur verið góður í því að gefa út óútfyllta tékka, t.d. varðandi ríkisábyrgð, þá er ég að vísa í Byr-málið og fleiri mál þar sem enn eru ekki öll kurl komin til grafar.
Virðulegi forseti. Ég hef lagt fram nefndarálit og tala fyrir hönd 2. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég vil benda á fylgiskjal með nefndaráliti mínu, á bls. 3 og áfram. Það er sú umsögn sem Ágúst Þór Árnason, deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri, og Skúli Magnússon, dósent lagadeildar Háskóla Íslands, sendu til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég ákvað að hafa umsögnina sem fylgiskjal, því að í henni komast þeir alveg að kjarna málsins og um hvað það snýst. Ég er algjörlega sammála þeim, og það er langtum betra að hafa þetta sem fylgiskjal fremur en að ég endurskrifi skoðanir þeirra. Umsögnin varpar skýru ljósi á málið og til að sýna fram á vægi hennar þá sátu þessir aðilar í hinni sjö manna stjórnlaganefnd sem kosin var af Alþingi, þeir voru í hópi þeirra sjö fræðinga sem alþingismenn komust að samkomulagi um að væru til þess bærir að undirbúa þessi málefni og veita ráðgjöf um þau og tillögur.
Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lætur eins og þetta álit sé ekki til og tekur ekki tillit til þess.
Ég ætla að grípa niður í umsögnina. Á bls. 8 stendur, með leyfi forseta:
„Svo að framangreindum kröfum réttarríkisins sé fullnægt verður almenningur að hafa aðgang að lögfræðilegri þekkingu. Þetta þýðir ekki aðeins að hvert ríki sem byggir á lögum verður að leggja ákveðna rækt við lögfræði og tryggja að til sé stétt lögfræðinga. Þetta þýðir einnig að aðgangur að lögfræðingum og lögmönnum verður að vera fyrir hendi án óhóflegrar fyrirhafnar eða kostnaðar.
Í tillögum stjórnlagaráðs má sjá þess merki á nokkrum stöðum að leitast er við komast hjá „lögfræðilegu“ orðalagi og hugtökum. Við gerum fyrirvara við slíka nálgun og teljum að hún geti leitt til þess að ákvæði verði óljós og ómarkviss. Þá teljum við rétt að árétta þá almennu skoðun að nauðsynlegt sé að lögfræðingar aðstoði við framsetningu tillagna og texta nýrrar stjórnarskrár. Með því er hvorki dregið úr mikilvægi ýmissa annarra sérfræðinga við lagasmíð né lýðræðislegri ákvörðunartöku um efnisatriði.“
Frú forseti. Þarf að hafa um þetta fleiri orð? Fyrir nefndina komu aðilar úr stjórnlagaráði og fullyrtu við nefndarmenn að stjórnarskrá ætti sko alls ekki að byggjast á lögum eða lögfræðilegri túlkun. Meiri hluti nefndarinnar talar um að lögfræðielítan skuli ekki koma að því að semja stjórnarskrá. Á hvaða villigötum er ríkisstjórnin og sá meiri hluti sem starfandi er í þinginu?
Ég lít þetta mjög alvarlegum augum, frú forseti, því að stjórnarskrá er ekki hægt að byggja upp á siðferðilegum grunni, því stjórnarskrá er æðsta lögfræðiplagg hvers sjálfstæðs og fullvalda ríkis. Sú skoðun endurspeglast í umsögn þessara fræðimanna, það má sjá í þeirri skýrslu sem stjórnlagaráð sendi frá sér að hún er ekki nógu lögfræðilegt plagg, af því að hún markast frekar af siðferðislegum og tilfinningalegum rökum en lagalegum. Stjórnarskrá má alls ekki byggjast á tilfinningalegum rökum, ekki frekar en lagasetning.
Ég ætla ekki að lesa upp nefndarálit mitt, frú forseti, en vegna þess að þeirrar skoðunar stjórnarskrárnefndar að verki hennar sé lokið og hún hafi lagt niður störf samkvæmt lögum, þá langar mig að minnast á eitt sem kemur fram neðarlega á bls. 1 í nefndaráliti mínu til að rökstyðja mál mitt en ég lít svo á að stjórnlagaráð hafi einnig lokið störfum. Ég sæki náttúrlega heimild mína fyrir þessari skoðun í þingskjöl, því í 4. mgr. þingsályktunartillögunnar um stjórnlagaráð segir skýrum stöfum að ráðið skuli skila tillögum sínum til Alþingis í formi frumvarps til stjórnarskipunarlaga og á lokafundi stjórnlagaráðs þann 28. júlí 2011 var gengið frá aðfaraorðum frumvarpsins og skilabréfi ráðsins til forseta Alþingis. Því er ljóst að stjórnlagaráð hefur lokið störfum og er ekki til samkvæmt lögum. Þetta er augljóslega skilningur ráðsins sjálfs vegna þessarar skilagreinar til forseta Alþingis og það hefur skilað af sér þeirri skýrslu sem þegar hefur verið rædd hér á þingi. Þetta er skilningur ráðsins, þetta er skilningur minn, en þetta er ekki skilningur hæstv. ríkisstjórnar sem hefur hingað til ekki talið eftir sér að fara gegn Hæstarétti og móti úrskurðum Hæstaréttar, því miður. Þessi ríkisstjórn virðir ekki þrígreiningu ríkisvaldsins. Það er alvarlegt.
Aðeins um það sem hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir kom að í andsvari við mig varðandi hvað verður hugsanlega lagt fyrir stjórnlagaráðið. Ég tek fram að þetta var lauslega rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna ítrekaðra fyrirspurna, meðal annars frá mér sem sit í minni hluta nefndarinnar, um hvað ætti að spyrja. Þetta var rætt á nefndarfundi en ekki gengið til atkvæða um hvað ætti að ræða, þannig að ég lít svo á að það sem stjórnlagaráð eigi að ræða um sé ekki komi í lögformlegt ferli eða ákvarðanatöku. Þannig að þeir stjórnlagaráðsmenn sem sitja hér uppi á pöllum eða heima eða í sinni vinnu og fylgjast með þessum umræðum, eru í raun engu nær, því að ákvörðun liggur ekki fyrir og málið hefur ekki verið formlega tekið fyrir í nefndinni.
En það komu upp tillögur eins og hér hefur komið fram eins og til dæmis að það væri ágætt ef stjórnlagaráðið mundi ræða forsetakaflann. Hvers vegna? Jú, vegna þess að við þingsetningu 1. október síðastliðinn talaði forseti Íslands úr þessum ræðustól eins og venja er í þingsetningu og túlkun hans á skýrslu stjórnlagaráðs varðandi forsetakaflann var bara allt önnur en sú túlkun sem meiri hluti stjórnlagaráðs hafði komist að fyrr um sumarið. Þannig að ríkisstjórninni fannst að ekki væri hægt að búa við það og skoða yrði forsetakaflann upp á nýtt.
Athuga á einnig kosningaákvæðin. Það er svo ítarlegur kosningakafli í tillögum stjórnlagaráði að ég tel að hann eigi heima í sérlögum og hvergi annars staðar, sér í lagi í ljósi þess að samkvæmt þessum tillögum er um miklar breytingar á kosningalöggjöfinni að ræða.
Stjórnlagaráð á kannski að tala um þröskulda fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og hvernig þeir eigi að vera og hvort málskotsréttur forsetans sé virkur varðandi þröskulda fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Það á jafnvel að ræða hvort hafa eigi þingsköp í stjórnarskránni. Ræða á hvort ríkisstjórn sé fjölskipað stjórnvald og svo á kannski líka að ræða hvernig breyta eigi stjórnarskránni.
Svo minntist formaður nefndarinnar líka á nokkuð sem ég hafði ekki heyrt af áður. Það var um 97. gr., það kom fram andsvarinu, en hún fjallar um sjálfstæði ríkisstofnana. Það kemur náttúrlega inn á þetta sem ég var að tala um Ríkisendurskoðun og annað, því að samkvæmt tillögu ráðsins á að vera hægt að stofna til ríkisstofnunar, en hún verður ekki lögð niður eða henni breytt verulega nema 2/3 hlutar atkvæða á Alþingi segi svo til um. Það þýðir að hægt verður að stofna og stofna ríkisstofnanir, en varla verður hægt að leggja þær niður.
Svo minntist formaðurinn líka á 113. gr. sem er um stjórnarskrárbreytingar.
Þetta er því líklega það sem stjórnlagaráð á að ræða um. Þá segi ég líka og sagði á fundinum: Hvers vegna á stjórnlagaráð að endurskoða nákvæmlega þessa kafla sem það hefur þegar komist að samkomulagi um og eru í þessari skýrslu? Hvers lags eiginlega er þetta? Á ráðið að endurskoða sín fyrri verk? Þetta er svipað og nefndin sem lífeyrissjóðirnir stofnuðu til eftir hrunið til að endurskoða sjálfa sig. Þetta er að sjálfsögðu ekki sambærilegt, en vinnubrögðin eru sambærileg, ég er að benda á það. Af hverju á stjórnlagaráðið að taka upp þessa kafla og hvað á að ræða? Enginn fulltrúi úr stjórnlagaráði hefur setið fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þegar fræðingarnir hafa komið til okkar en þeir hafa verið mjög gagnrýnir á þessa skýrslu, þannig að þekkingin hefur ekki borist á milli manna. Þó að rituð hafi verið einhver fundargerð samkvæmt lögum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, stendur bara í henni hvaða gestir komu fyrir nefndina, ekki hver efnisleg skilaboð gestanna voru. Þarna verður spekileki.
Þess vegna segi ég, frú forseti: Við erum á nákvæmlega sama stað og 1. október árið 2011. Málinu hefur ekki fleygt fram, það er verið að setja það í bakkgír. Það er verið að hindra málið. Þetta er tafarleikur hjá ríkisstjórninni og meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þetta er tafarleikur til að við sem eigum að fjalla um breytingar á stjórnarskrá fáum ekki að gera það. Eins og flestir vita vonandi eru það fyrst og fremst alþingismenn sem geta breytt stjórnarskránni og lagt fram frumvörp þess efnis. Líklega er það ríkisstjórninni til hagsbóta að leika þessa tafarleiki, því eins og ég benti á í grein í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag er það ákveðið skilyrði Hreyfingarinnar fyrir því að styðja ríkisstjórnina að þetta mál fái framgöngu. Það er alveg ljóst.
Svo ég flytji aðeins fleiri fréttir úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þá gagnrýndi ég þetta og kom fram með þessi rök: Hvers vegna á stjórnlagaráð að endurskoða fyrri afstöðu sína þegar ekki liggur fyrir efnislega hvað það eigi að ræða? Þá kom upp sú hugmynd að við gætum kannski farið með ákvæðið um það hvort hér ætti að vera þjóðkirkja í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég sagði: Já, það er mjög snjallt. Við skulum fara með öll deilumálin sem hægt er að hugsa sér í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum. En einmitt svona vinnur þessi ríkisstjórn og hefur unnið, hún hefur þjóðina hrædda og í óvissu og í sem mestum deilum og fer fram með mál í ófriði en ekki friði.
Virðulegi forseti. Ég býð ekki í þá stund ef farið verður til dæmis með það í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort í stjórnarskrá eigi að vera ákvæði um það að hér eigi að vera þjóðkirkja eða ekki. Við vitum alveg að vinstri menn vilja ekki þjóðkirkju, en ef fara á með málið út í þann skurð, er orðið tímabært að ríkisstjórnin fari frá. Hún ræður ekki við þetta mál. Það er komið hingað fyrir þingið til að dreifa athyglinni. Hér féll hæstaréttardómur í síðustu viku sem gerbreytir stöðu þeirra lántakenda sem voru með gengistryggð lán. Sá dómur jók enn frekar bilið á milli þeirra lántakenda sem tóku verðtryggð lán og þeirra sem tóku gengistryggð lán. Þess vegna er hentugt fyrir ríkisstjórnina að hafa þetta mál nú á dagskrá þingsins og glymjandi í öllum fjölmiðlum til að þurfa ekki að takast á við vandamálið sem hún stendur frammi fyrir og á að vinna að.
Framsóknarflokkurinn hefur alltaf lagt áherslu á að það eru heimilin og fyrirtækin í landinu sem skipta máli. Við verðum að hlúa að þeim. Fyrr náum við ekki viðspyrnu. Þetta stjórnarskrármál er algjörlega ótímabært. Nú er það sett á dagskrá og verður á dagskrá þingsins allan marsmánuð, bara til að ríkisstjórnin hafi frið til að gera ekki neitt í málefnum heimilanna, gera ekki neitt fyrir atvinnulífið, heldur einungis að hugsa um að hanga í ráðherrastólum sínum einn dag í viðbót eins og ákveðnir sjúklingar þurfa því miður gjarnan að lifa við. Að lifa einn dag í einu, [Hlátur í þingsal.] það er markmið ríkisstjórnarinnar. Það er skelfilegt að horfa upp á þetta, en ég hef séð þessa tækni hjá ríkisstjórninni fyrr, að beina athyglinni í aðra átt og því miður með góðri og dyggri aðstoð (Forseti hringir.) ýmissa fjölmiðla.