meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir sýn hennar á það ferli sem þessi þingsályktunartillaga býr til. Hún nefndi, og það hefur reyndar komið fram, að það hefði verið á grundvelli stjórnarskrárbrots sem Hæstiréttur dæmdi um daginn vexti af lánum á annan veg en framkvæmt hafði verið.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að ég hef það á tilfinningunni að hún viti þetta, ég hef ekki haldið tölur yfir það: Hefur hún haldið tölu um þau hugsanlegu stjórnarskrárbrot sem hafa verið framin undanfarið?
Ég minnist þess að einu sinni þegar kvótadómur var kveðinn upp sem byggði á því að stjórnarskráin hefði verið brotin þá varð uppi fótur og fit og mikil læti og menn drifu í því að laga þetta stjórnarskrárbrot með því að flytja frumvarp í tengslum við það. Eins var þegar öryrkjadómurinn féll, þá var það mikið mál fyrir þáverandi hv. þing og meiri hluta og var fljótlega komið með frumvarp til að kippa því í liðinn.
Ég hef það á tilfinningunni að í vaxandi mæli fari menn ekki að stjórnarskránni og það sem er öllu verra, frú forseti, öllum er sama. Það virðist ekki vera að neitt mál lengur að stjórnarskráin sé brotin. Það þykir mér sýnu alvarlegra og sérstaklega þar sem við erum að fjalla hér um nýja stjórnarskrá sem við vonumst væntanlega til og viljum að verði haldin ef hún verður samþykkt.
Ég spyr hv. þingmann hvort hún hafi haldið eitthvað utan um stjórnarskrárbrot eða hvort það sé einhvers staðar gert og hvernig henni lítist á það að einmitt í umræðu um nýja stjórnarskrá og ferlið í kringum hana tali menn um stjórnarskrárbrot eins og ekkert sé.