meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.
Forseti. Áttum okkur á einu, baráttan um Ísland er núna. Þess vegna er svo athyglisvert hverjir það eru sem spretta upp í þessari umræðu og finna málinu allt til foráttu. Fulltrúar hverra eru það sem engu vilja breyta? Hverjum hentar að halda málinu í eilífu ferli, nefndum sem skila tillögu sem ekkert er gert með? Hverjir vilja ekki nýja Ísland? Hverjir vilja ekki að þjóðin sé spurð álits? Hverjir vilja óbreytt ástand?
Málflutningurinn hefur verið með ólíkindum í dag hjá mörgum þingmönnum. Framsögumaður 2. minni hluta Vigdís Hauksdóttir kallar stjórnlagaráðið uppvakninga í nefndaráliti sínu. Hér er lágt lagst en vinnan í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur verið ánægjuleg og hún hefur verið fróðleg og okkur hafa borist margar góðar ábendingar, bæði frá gestum og umsagnaraðilum. Okkur bárust á þriðja hundrað umsagnir, langflestar þeirra voru afar jákvæðar. Mér finnst frábært að finna þann stuðning sem málið fær hjá stórum hluta þjóðarinnar.
Margir sérfræðingar hafa einnig sent inn umsagnir og komið á fund nefndarinnar. Margar góðar ábendingar hafa borist. Og nú viljum við bera álitaefni undir það góða fólk, fólkið sem þjóðin valdi til að gefa tækifæri á að koma að málinu aftur, skýra eitthvað sem hugsanlega er óskýrt, taka tillit til þeirra umsagna og góðu ábendinga sem borist hafa. Það finnst mér fallegt. Ég ber traust til stjórnlagaráðs og ég ber traust til þjóðarinnar. Þess vegna styð ég þessa tillögu og það ferli sem málið er í.