meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Við þessar umræður um þá þingsályktunartillögu sem við greiðum atkvæði um hafa komið ýmsar efnislegar athugasemdir um málsmeðferðina. Ég vakti í gær athygli á þeim vanda sem ég tel augljósan, að sá tími sem Alþingi hefur frá því að stjórnlagaráðið hefur skilað til þingsins athugasemdum sínum og þar til þingið þarf að vera búið að búa málið frá sér þannig að það sé tækt í þjóðaratkvæðagreiðslu er mjög skammur. (VigH: 17 dagar.) Það eru 17 dagar til að klára málið, t.d. til þess að taka ákvarðanir um hvaða spurningar eigi að fara til þjóðarinnar og hvernig þær eigi að vera orðaðar.
Svo vil ég auðvitað líka segja þá skoðun mína, frú forseti, að ég er mjög hugsi yfir því að stefna saman í eina atkvæðagreiðslu forsetakjöri annars vegar og hins vegar kosningu um stjórnarskrá. Það þarf að fara fram hjá þjóðinni mjög vönduð og yfirgripsmikil umræða um stjórnarskrána og ég er ekki viss um að það beri vott um mikla virðingu fyrir embætti forseta að ætla að keyra það ofan í þá sömu kosningu. (Forseti hringir.) Það kann jú að vera að fram fari kosning á milli einstaklinga í það embætti.