Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ég get tekið undir margt sem síðasti ræðumaður sagði við góðar undirtektir stjórnarliða. [Hlátur í þingsal.] Ég get eiginlega tekið undir flest sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir sagði.
Það sem skiptir hins vegar máli í þessu tiltekna þingmáli er að um er að ræða lítils háttar breytingu þar sem er verið að samræma lagasafnið, samræma orðalag í einstökum lögum, og þó að ég hafi verið (Gripið fram í.) andvígur þeirri breytingu sem upphaflega var farið af stað með get ég ekki annað en samþykkt að smásamræmi og kerfi sé á vitleysunni. [Kliður í þingsal.]