140. löggjafarþing — 62. fundur,  27. feb. 2012.

ESB og fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi.

[15:06]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Þessi yfirlýsing hæstv. ráðherra er nokkuð mikilvæg, hann staðfestir að ef ekki nást viðunandi samningar verði samningaviðræðunum hætt. Þar undir liggur auðvitað mat hæstv. ráðherra og Alþingis.

Í því máli sem ég nefndi, þ.e. varðandi fjárfestingarnar, vill nefnilega þannig til að það hefur komið fram mjög skýrt af hálfu framkvæmdastjórnarinnar, og gerði það í skýrslu hennar í október sl., að lagaramminn hér á landi stangast á við lög sambandsins þannig að það er augljóst hver samningsmarkmið ESB eru. Þess vegna liggur svo á að láta reyna á þetta og síðan, ef það er ekki hægt, standa eftir yfirlýsingar hæstv. ráðherra, en ég bendi á að það er í nokkru ósamræmi við skoðun til dæmis hæstv. innanríkisráðherra sem telur að það eigi að ljúka samningaviðræðunum með hvernig samningum sem er og bera undir þjóðina. (Forseti hringir.) Það er nokkur meiningarmunur á milli þessara tveggja hæstv. ráðherra.