uppgjör gengistryggðra lána.
Virðulegi forseti. Það virðist vera sérstök hæfni hæstv. ráðherra að svara ekki þeim spurningum sem beint er til hans. Meginhluti ræðu hans fór í að réttlæta þessi lög og ég held að hæstv. ráðherra ætti að fara að hætta því.
Ég ítreka þessar spurningar: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að bregðast við niðurstöðum Hæstaréttar, ekki bara einni, tveimur eða þremur heldur fjölmörgum, varðandi ólögmæti gengistryggðra lána? Ætlar hann að tryggja gjafsókn? Ætlar hann að tryggja flýtimeðferð á þeim málum sem enn eru í dómskerfinu? Ætlar hann að tryggja að fyrir liggi dómsúrskurður þegar farið verður að vörslusvipta fólk eignum — eða ekki eignum sínum eins og er enn þá óljóst? Reiknireglan sem kemur fram í lögum nr. 151/2010 er ekki í samræmi við dóm Hæstaréttar. Það þarf að lagfæra hana (Forseti hringir.) og fyrir utan það er hún mjög óskýr þannig að ég ítreka að ég óska eftir því að hæstv. ráðherra svari mér.
Hvað hyggst hann gera núna í staðinn fyrir að tala endalaust um fortíðina?