140. löggjafarþing — 62. fundur,  27. feb. 2012.

breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu.

[15:26]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég legg til að hv. þm. Birgir Ármannsson glími við einhvern byrjanda í þingmennsku en ekki þann sem hér stendur ef hann heldur (Gripið fram í: Ooo.) að hann geti veitt mig í svona auðveldar gildrur.

Það liggur algerlega fyrir (Gripið fram í: … fá svar.) hvaða grundvallarbreytingar (Gripið fram í: … segja pass.) menn hafa rætt um að gera á þessu kerfi. Það varðar það að ganga frá því hver á þessa auðlind, festa í lög og stjórnarskrá og í reynd í framkvæmd að um sé að ræða sameiginlega auðlind, skilgreina réttinn sem menn hafa í höndunum um að það sé afnotaréttur en hvorki bein né óbein eign og láta menn greiða eðlilegt afgjald fyrir hana. Margt fleira en þetta er hrygglengjan í þeirri kerfisbreytingu sem verið er að tala (Gripið fram í: …slysinu.) um og ég held að menn ættu ekki að gera lítið úr ef tækist með því og fleiru að ná einhverjum lágmarksfriði um þessi mál.

Hitt er annað, og það eru menn sammála um, að að mörgu leyti hefur aflamarkskerfið og sú aðferð að útdeila réttindum á slíkum grunni, styðjast við aflareglu, leyfa ekki brottkast o.s.frv., reynst okkur vel og aðrar þjóðir gætu tekið sér það til (Forseti hringir.) eftirbreytni. Það hefur nákvæmlega ekkert með það að gera hver grunnur kvótakerfisins er hvað varðar auðlindina, afgjald fyrir hana og aðra slíka þætti. Það eru málin sem við erum að tala um.