verklagsreglur um skilarétt, gjafabréf og inneignarnótur.
Frú forseti. Varðandi fyrirspurn hv. þm. Birkis Jóns Jónssonar þá kemur fram samkvæmt þeim svörum sem ég hef að aflað hafi verið upplýsinga frá Samtökum verslunar og þjónustu og Neytendasamtökunum. Það segir í sjálfu sér ekki að ekki kunni að hafa verið haft samband við fleiri þegar málið var undirbúið en ég hef ekki upplýsingar í höndunum um það. Það eina sem ég veit er að þær upplýsingar sem við styðjumst hér við eru byggðar á gögnum frá þessum tveimur aðilum.
Varðandi málið að öðru leyti þá hef ég kannski ekki miklu við að bæta öðru en því að ef ég skil réttarstöðuna hér rétt eru þetta leiðbeinandi reglur. Við höfum ekki í heimildir lögum og að því er virðist ekki annars staðar heldur stöðu til þess að skylda menn til að veita þessa þjónustu, það þyrfti þá að afla lagastoðar fyrir slíku ef menn vildu ganga svo langt. Ég veit ekki hvort við getum það eða hvort ríkari kröfur eru lagðar á verslun annars staðar í evrópskum rétti, en auðvitað væri hægt að hugsa sé að leggja einhverjar kvaðir, e.t.v. lögbundnar, á verslunar- og þjónustuaðila til dæmis um upplýsingagjöfina. Það mætti alveg hugsa sér að með sama hætti og tilteknar kröfur eru lagðar á um verðmerkingar eða upplýsingar um vöru væri það til dæmis skoðað að verslanir og þjónustuaðilar skyldu hafa í anddyri eða við inngang verslana uppi á áberandi stað upplýsingar um nákvæmlega hvaða rétt neytendur hefðu á grundvelli þeirra reglna sem viðkomandi verslun hefði ákveðið að setja sér, þannig að upplýsingarnar væru alltaf aðgengilegar. Það er væntanlega eitthvað sem ekki væri vandamál að leggja sem kvöð á verslunina að gera.
Varðandi hitt sem hv. þingmaður nefnir þá er ábyggilega erfitt að sjá við því ef verslanir verða gjaldþrota og hafa gefið út gjafabréf, ég veit ekki hvort er nokkur leið að róa með öllu fyrir þá vík en það er dapurlegt þegar það gerist, en í umrótsástandi eins og því sem við höfum upplifað getur (Forseti hringir.) slíkt auðvitað hent.