140. löggjafarþing — 62. fundur,  27. feb. 2012.

fjar- og dreifkennsla.

431. mál
[16:14]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka þessa umræðu og vil þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir að vekja máls á þessu brýna máli sem hefur hjálpað mörgu heimilinu hringinn í kringum landið vegna þess að fjarnám léttir undir með mörgum heimilum og gerir það að verkum að fólk á auðveldara með að sækja nám með þeirri aðferð. Það er vel. Ég treysti rétt eins og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fáum ef nokkrum betur til þess að standa vörð um þetta kerfi en Oddnýju G. Harðardóttur, sem er vel að sér í menntamálum þjóðarinnar og hefur unnið þar sem stjórnandi um árabil og þekkir því kosti þessarar leiðar sem eru miklir fyrir dreifðar byggðir, fyrir fólk sem á vegna ýmissa aðstæðna erfitt með að sækja nám um langan veg. Hér er um mikið hagsmunamál fyrir heimilin í landinu að ræða og ég hvet ráðherra til að standa vörð um það og sækja fram í þessu efni.