140. löggjafarþing — 62. fundur,  27. feb. 2012.

opinn aðgangur að afrakstri fræðistarfa.

534. mál
[19:04]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Merði Árnasyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Eins og fram kom í máli hv. þingmanns er vitnað í svokallaða Berlínaryfirlýsingu sem var undirrituð 25. júní 2010 þar sem háskólar, sjóðstjórnir og opinberar stofnanir sem styrkja rannsóknir og vísindastarf eru hvattar til að setja sér stefnu um birtingar á efni í opnum aðgangi. Þessi undirritun byggir á stefnu sem var samþykkt í Vísinda- og tækniráði fyrir árin 2010–2012 þar sem er kveðið á um opið aðgengi sem einn stefnulið.

Til að fylgja tillögunni eftir sendi ég öllum þeim háskólum, rannsóknarstofnunum og sjóðum sem heyra undir mitt ráðuneyti bréf í kjölfarið á þessu þar sem undirritun Berlínaryfirlýsingarinnar var kynnt og stofnanir og sjóðir voru hvattir til að taka tillit til yfirlýsingarinnar í starfi sínu. Þar hefur raunar margt gerst. Háskólar hafa unnið að stefnumótun í þessum málum. Ég nefni sem dæmi Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands og fleiri skóla sem hafa gengið á undan og unnið að þessu og haldið um það bæði ráðstefnur og sett sér stefnu í þessum málum.

Hvað varðar sérstaklega spurningu hv. þingmanns um stefnu Rannsóknamiðstöðvar Íslands vil ég greina frá því að miðstöðin vinnur að því ásamt sjóðstjórnum sem fara með Rannsóknarsjóð og Tækniþróunarsjóð og fleiri sjóði að innleiða stefnu um opinn aðgang fyrir þá sjóði sem miðstöðin hefur umsýslu með. Rannsóknarsjóður og Tækniþróunarsjóður vega þar þyngst á metunum. Sú vinna fer fram í samráði við stjórnir þeirra.

Rannsóknarsjóður hefur ætíð gert skýrar kröfur um birtingar á alþjóðavettvangi og í samningum sem nú eru í gildi við styrkþega segir m.a., með leyfi forseta:

„Niðurstöður rannsókna sem Rannsóknarsjóður styrkir skulu birtar opinberlega í viðurkenndum tímaritum eða öðrum ritverkum og vera aðgengilegar almenningi og öðrum væntanlegum notendum niðurstaðnanna. Stefnt skal að því að birta niðurstöður eins fljótt og auðið er.“

Til þess að ýta undir birtingar í opnu aðgengi hefur Rannsóknarsjóður viðurkennt útgáfukostnað sem sérstakan hluta af verkefniskostnaði. Undir þann lið getur fallið kostnaður við að greiða fyrir birtingu í opnu aðgengi. Hann getur numið allt að 0,5 milljónum á hvert verkefni.

Í þessu sambandi vil ég taka fram að vísindamenn vilja flestir birta rannsóknir sínar á opinberum vettvangi í formi greina, bókarkafla, fyrirlestra eða með öðrum hætti og það eru auðvitað þeirra hagsmunir að birta niðurstöður vísindastarfs — þetta þarf ekki að segja. Birtingar eru jú í mörgum tilvikum beintengdar við launakjör fræðimanna, til að mynda í svokölluðu stigamatskerfi sem tíðkast í Háskóla Íslands og víðar.

Tvennt getur kannski einkum staðið í vegi fyrir birtingu í opnu aðgengi. Í fyrsta lagi getur leyfi fyrir birtingu á niðurstöðum í viðurkenndum vísindatímaritum verið í opnu aðgengi, þ.e. ef maður birtir grein í vísindatímariti og birtir hana um leið í opnu aðgengi, ef tímaritin hafa ekki allt sitt í opnu aðgengi, sem er alls ekki raunin fyrir öll tímarit, þá getur birtingarkostnaður numið allt að 3 þús. bandaríkjadölum eða á fjórða hundrað þúsund kr. fyrir hverja grein. Þessi útgáfustyrkur sem Rannsóknamiðstöðin veitir er þá hugsaður til þess að mæta slíkum kostnaði. Það hefur valdið erfiðleikum hjá vísindamönnum að fjármagna birtingu í opnu aðgengi. Í öðru lagi er það sem hv. þingmaður nefndi, einkaleyfin. Rannsakendur hafa stundum viljað fresta því að birta niðurstöður ef ætlunin er að sækja um einkaleyfi á uppfinningu sem kann að leiða af niðurstöðum rannsókna en opinber birting eyðileggur svonefnt nýnæmi eins og það er kallað, uppfinningar, sem er áskilið fyrir veitingu einkaleyfis.

Svo má ræða um þá þróun út frá vísindapólitískum sjónarmiðum hvernig við teljum hana hafa orðið hér á landi því að það er spurning. Sumir telja að við höfum ekki nægilega mörg einkaleyfi hér en aðrir hafa bent á að það sé í raun og veru ekki siðlegt að rannsóknamiðstöðvar og vísindarannsóknir, sem fyrst og fremst eru fjármagnaðar af opinberu fé, séu svo „patenteraðar“, svo að ég sletti, og nýtist þar af leiðandi ekki almenningi.

Vísindamenn og rannsakendur eru eftir sem áður hvattir til að birta á vettvangi opins aðgengis þrátt fyrir þetta og í því skyni vinnur sem sagt Rannsóknamiðstöðin að því að ljúka við að gefa út opinbera stefnumótun um aðgengi og stefnt er að því að hafa slík ákvæði með skýlausari hætti í samningum sjóðanna við styrkþega. Ég á von á því að þessu verði lokið þegar gildistími stefnunnar fyrir Vísinda- og tækniráð rennur út, en hún gildir í raun og veru út árið 2012, þannig að ég á von á þessu á þessu ári. Við höfum enn fremur fylgt málinu eftir þannig að ekki aðeins sjóðirnir sem heyra undir Rannsóknasmiðstöðina heldur líka rannsóknarstofnanir og háskólar setji sér skýra stefnu um opið aðgengi að fræðastarfi.