140. löggjafarþing — 63. fundur,  28. feb. 2012.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að sérstök umræða sem fyrirhuguð var kl. 2 í dag, um Vaðlaheiðargöng, fellur niður af óviðráðanlegum orsökum.

Þá vill forseti einnig tilkynna að 7. dagskrármálið, innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, er tekið af dagskrá að beiðni formanns efnahags- og viðskiptanefndar.

Enn fremur gerir forseti ráð fyrir atkvæðagreiðslum um afbrigði og 3. umr. um mál upp úr kl. 2.

Þá vill forseti geta þess að talsvert fleiri þingmenn hafa óskað eftir að taka til máls undir 1. dagskrárliðnum en munu komast að.