störf þingsins.
Frú forseti. Ég kveð mér hljóðs vegna nýlegra frétta sem okkur hafa borist í fjölmiðlum um að rannsóknir á hafsbotni á Drekasvæðinu gefi jákvæðar vísbendingar um að þar sé olíu að finna í vinnanlegu magni og að Drekasvæðið feli í sér virt kolefniskerfi, eins og það er kallað, sem gefi góðar vonir um framhaldið. Þessar vísbendingar þykja svo áreiðanlegar að breskt/norskt olíuleitarfélag vill láta kanna hvort hentugra sé að þjóna olíuborpöllum á norska hluta Jan Mayen svæðisins frá Íslandi eða Jan Mayen.
Þessar fréttir vekja okkur til umhugsunar um auðlindamál okkar Íslendinga og framtíðarauðlindanýtingu og þjónustu við auðlindanýtingu, hvort sem þau lúta að jarðefnum, háhita, vatni eða fiskstofnum svo að fátt eitt sé nefnt. Markviss nýtingarstefna gagnvart auðlindunum er okkur lífsnauðsyn og það hvernig við innköllum arð af auðlindum okkar og þá ekki síður hvernig við ráðstöfum tekjum af þeim arði.
Nú hefur verið mælt fyrir nýrri heildstæðri orkustefnu í þinginu og kannski ekki seinna vænna nú þegar búið er að virkja helming af allri nýtanlegri raforku í vatnsafli og jarðvarma. En við eigum þó enn auðlindir sem ekki hefur verið gengið svo mjög á og það eru endurnýjanlegar auðlindir eins og andrúmsloftið, vindorkan, sjávarföllin og fiskstofnarnir sem gefa mikla möguleika. Í þessu ljósi er aðkallandi að móta trausta umgjörð um nýtingu þessara auðlinda okkar með almannahag og samfélagslega hagkvæmni að leiðarljósi. Því er mikilvægt að það dragist ekki að stofna auðlindasjóð sem býður út nýtingarsamninga eða leyfi til afmarkaðs tíma að teknu tilliti til fjárfestingarþarfar og afskriftatíma. (Forseti hringir.) Það er ekki eftir neinu að bíða og brýnt mál að í þetta verði gengið hið fyrsta.