störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að ræða lítillega við formann utanríkismálanefndar hv. þm. Árna Þór Sigurðsson.
Um síðustu helgi komu fram hugmyndir frá ríkisstjórninni, frá hæstv. innanríkisráðherra, um að ljúka aðildarsamningum á einhverjum mánuðum, ljúka ferlinu og kjósa fyrir næstu alþingiskosningar. Undir þetta hafa tekið þingmenn eins og hv. þm. Jón Bjarnason og sagt að þessu máli verði að ljúka með samningum og að stöðva verði það aðlögunarferli sem er í gangi. Hæstv. utanríkisráðherra segir hins vegar að þetta sé vonlaust og að mjög erfitt verði að klára ferlið á þessu kjörtímabili og undir það hafa fleiri hv. þingmenn tekið.
Fyrir síðustu alþingiskosningar var klárlega gefin út sú stefna að ekki yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu af hálfu Vinstri grænna. Þá langar mig að spyrja hv. þm. Árna Þór Sigurðsson hver stefna Vinstri grænna sé í því máli að ljúka samningum fyrir næstu alþingiskosningar. Eigum við von á því að þær hugmyndir sem hafa verið lagðar fram, um að þessu ljúki í seinasta lagi fyrir næstu alþingiskosningar, nái fram að ganga? Ef það nær ekki fram að ganga hver verður stefna Vinstri grænna í næstu þingkosningum varðandi þetta mál?
Fyrir síðustu kosningar var fjallað um að aldrei yrði sótt um aðild að ESB. Er stefnan raunverulega sú að okkur sé best borgið utan ESB á sama tíma og skattfrjálsir fjármunir til aðlögunar stefna inn í landið? Hver er stefna Vinstri grænna? Eigum við von á því að Vinstri grænir muni standa að því að ljúka þessum samningum og kjósa um þá til að mynda á haustdögum eftir sex til átta mánuði? Eða er ætlunin að draga þetta inn í næsta kjörtímabil og hver verður þá stefna flokksins?