140. löggjafarþing — 63. fundur,  28. feb. 2012.

störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að fagna jákvæðum fréttum um olíu á Drekasvæðinu. Það er enn ein auðlind sem bætist í þá gnægð auðlinda sem sjór og land geymir eins og fiskurinn og landrýmið, vatnið og orkan o.fl. Mikilvægast er auðvitað að við höfum í eigin höndum yfirráð yfir þeim auðlindum og stýringu á nýtingu þeirra. Þess vegna er enn furðulegri sú stefna ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar, sem kom hér fram, að sækja um aðild að Evrópusambandinu og halda henni til streitu hvað sem á gengi innan Evrópusambandsins og á evrusvæðinu.

Ég verð að segja eins og er að ég skildi hv. þm. Árna Þór Sigurðsson ekki alveg, hver væri stefna Vinstri grænna, og kannski undrar engan. Það má kannski segja að það verði sú sama stefna og kom fram fyrir síðustu kosningar þegar birtar voru auglýsingar, ég held frá Sjálfstæðisflokknum, þar sem þeir spurðu: Trúir því einhver að ríkisstjórn Samfylkingar og VG muni ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu, trúir því einhver? Hvað verður eftir næstu kosningar? Hver trúir Steingrími? Við skulum sjá til, sagði hann í þessari auglýsingu. Mér heyrðist hv. þm. Árni Þór Sigurðsson vera að segja það líka. Við skulum bara sjá til og taka stefnuna eftir því hvernig vindar blása á hverjum degi.

Ég fékk svar frá hæstv. utanríkisráðherra í gær varðandi kostnað við ýmsa þætti ef til þess kæmi að viðunandi samningar næðust og við gengjum í Evrópusambandið og tækjum upp evru. Þetta voru frekar stuttar og skýrar spurningar en svarið er á fimm blaðsíðum. Þó held ég að ráðherrann hafi ekki sjálfur skrifað það, eins og mörg svör sem hann hefur birt upp á síðkastið, þar sem 90% í svörunum snúast um að reyna að sannfæra þann sem sendi inn fyrirspurnina um ágæti Evrópusambandsins en ekki að svara beinhörðum spurningum um áætlaðan kostnað við þátttöku í þessum (Forseti hringir.) sjóði eða hinum. Það er kannski ekki skrýtið að stjórnsýslan sé þjökuð af þessum Evrópusambandsaðildarviðræðum (Forseti hringir.) ef menn eyða svona miklum tíma í að svara einföldum spurningum, frú forseti.

(Forseti (ÁRJ): Enn minnir forseti á ræðutímann, tvær mínútur.)