140. löggjafarþing — 63. fundur,  28. feb. 2012.

störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Í tilefni umræðu sem varð í gær í þinginu og skrifa einhverra stjórnarþingmanna langar mig til að kveðja mér hljóðs og fjalla aðeins um mótrök þau sem lögð hafa verið fram gegn frumvarpi því sem ég mun mæla fyrir síðar í dag, um ráðstafanir til að lækka eldsneytisverð.

Frumvarpið er lagt fram til að auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Þannig er mál með vexti að milli 7 og 8% neysluútgjalda heimilanna eru vegna eldsneytis. Þegar jafnmiklar hækkanir verða og hafa verið undanfarið er því ljóst að það kemur við pyngjuna hjá heimilunum.

Nú er okkur sagt að þetta frumvarp muni kosta um 13 milljarða kr. Það er sagt að kostnaður ríkisins af frumvarpinu gæti orðið 13 milljarðar kr. Þetta er óneitanlega frumleg nálgun á viðfangsefnið. Það að taka ekki hluta ráðstöfunartekna heimilanna er nú allt í einu orðinn kostnaður fyrir ríkið. Það er skrýtið viðhorf sem kemur fram í því orðalagi að telja skattalækkanir kostnað fyrir ríkissjóð.

En menn geta þá spurt: Hvaðan á að taka það tekjutap sem frumvarpið mun leiða til? Það er einfaldlega með því að taka til í útgjöldum ríkissjóðs.