140. löggjafarþing — 63. fundur,  28. feb. 2012.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Vegna frétta síðasta sunnudag og viðtals við Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjón á Bylgjunni og við fréttastofu ríkissjónvarpsins, þar sem fréttastofa sjónvarps nefndi nafn mitt til sögunnar, óskaði ég eftir svari við því hvort rannsókn færi fram á vegum lögreglustjóraembættisins á höfuðborgarsvæðinu jafnframt því sem ég óskaði eftir afriti af þeim skjölum og gögnum sem lægju fyrir og nafn mitt tengdist og þá í hvaða samhengi.

Í svari lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að hann hafi á síðasta hausti óskað eftir því að yfirlögregluþjónninn tæki saman og skráði upplýsingar um aðkomu lögreglunnar að þeim mótmælum sem urðu í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá hruni bankanna í október 2008. Síðan segir, með leyfi forseta:

„Markmiðið með þessari vinnu er að taka saman fyrirliggjandi gögn og upplýsingar hjá embættinu sem varða skipulag, framkvæmd og úrlausn einstakra verkefna sem tengdust mótmælunum. Tekur þessi vinna til allra þátta, þ.e. ákvarðana sem teknar voru í upphafi um viðbúnað og skipulag lögreglu, búnað, fjölda lögreglumanna í einstaka aðgerðum o.fl. Framangreind vinna er ekki lögreglurannsókn heldur samantekt á fyrirliggjandi gögnum hjá lögreglu. Engin lögreglurannsókn er eða var í gangi á meintu athæfi ótilgreindra þingmanna eða þingmanns í tengslum við mótmæli við þinghúsið í janúar 2009.“

Seinna bréfi, þar sem ég ítrekaði beiðni um aðgang að gögnum, svarar lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mér með eftirfarandi orðum, með leyfi forseta:

„Hvað varðar beiðni þína um aðgang að gögnum þar sem þitt nafn kemur fram þá get ég staðfest að nafn þitt kemur hvergi fram í málaskrá lögreglu í tengslum við þessa atburði.“

Frú forseti. Ég hef þegar lýst því yfir að með þessum bréfum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur nafn mitt verið hreinsað af þeim ásökunum sem sumir hv. þingmenn hafa verið svo smekklegir að draga upp og gera enn. Ég á aðeins eitt orð yfir framgöngu hv. þm. Jóns Gunnarssonar í þeim efnum, og það er klámhögg.