störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það verður fróðlegt að ræða um bensínfrumvarpið okkar seinna í dag vegna þess að ljóst er að rifja þarf upp nokkrar ræður og breytingartillögur sem fluttar voru hér árið 2002 þegar Sjálfstæðisflokkurinn, sem þá fór með fjármálaráðuneytið, beitti sér fyrir því að gera einmitt það sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til í stjórnarandstöðu núna og er kallaður lýðskrumari fyrir. Þá er athyglisvert að sjá breytingartillögur frá til dæmis hæstv. utanríkisráðherra sem við ræðum örugglega seinna í dag.
Ýmislegt hefur borið á góma hér í dag. Ég verð að segja vegna þeirra frétta sem hafa verið ræddar um búsáhaldabyltinguna og aðkomu þingmanna og aðila hér innan húss að því, að mér finnst við verða aðeins að draga andann og ekki að væna menn sem eru þekktir fyrir heiðarleika og ráðvendni eins og þessi ágæti yfirlögregluþjónn sem var í viðtali. Hann sagði aldrei að búsáhaldabyltingunni hefði verið stjórnað héðan úr þingsal. Hann var spurður hvort það væru einhverjir hér innan dyra sem hefðu haft aðkomu að þessu máli og hann svaraði því játandi.
Ég held að menn sem hafa hæst hér, ákveðnir þingmenn, nöfn hverra hafa verið dregin inn í þessa umræðu, ættu að rifja aðeins upp [Kliður í þingsal.] hvernig framganga þeirra var. Þessi ágæti yfirlögregluþjónn nefndi aldrei nein nöfn. Við skulum muna það að lögreglan sem stóð hér vörð og stóð vörð um okkur sem vorum inni í þessu húsi á ekkert annað skilið en þakkir frá okkur sem hér stöndum (Forseti hringir.) fyrir það að hafa ítrekað staðið vörð um Alþingishúsið og aðrar stofnanir ríkisins meðan á ólgutímum stóð. Ég held að við ættum að hafa það í huga þegar við tökum þátt í þessari umræðu hér.