rannsókn á einkavæðingu banka.
Virðulegi forseti. Ég hef kannski ekki verið nógu skýr í máli mínu. Ég hélt að ég hefði sagt það nokkrum sinnum áður að ég teldi að það væri sama um hvaða einkavæðingu væri að ræða, það þyrftu að vera skýrar leikreglur og opið og gagnsætt ferli. Eftir því sem ég best veit var Ríkisendurskoðun með ákveðnar athugasemdir á sínum tíma eða úttekt við einkavæðinguna og hafa þær athugasemdir sem þar komu fram ekki verið hraktar. Mér er alveg sama hvaða einkavæðing það er. Mér finnst að þessar reglur eigi að vera í hávegum hafðar. Ég er hins vegar ekki alveg viss um að það standist skoðun að það hafi valdið hruni á fjármálakerfinu því að okkur ætti að vera ljóst núna, ef það var ekki ljóst áður, að því miður var hrunið ekki bundið við Ísland. Það væru annars góðar fréttir, ekki bara fyrir okkur Íslendinga heldur líka heiminn. Því miður lesum við á hverjum einasta degi um hrun fjármálastofnana úti um allan heim. Og því miður er það þannig, eða alla vega sýnist mér það og ég hef skoðað þessi mál þó nokkuð vel, að menn eru ekki komnir með sýn á hvernig leysa á málin í hinu alþjóðlega fjármálaumhverfi. Þá er ég að vísa til þess að skapaðar verði þannig leikreglur að menn komi í veg fyrir að slíkir hlutir gerist aftur. Lausnin hefur fyrst og fremst verið sú að dæla peningum skattgreiðenda inn í fjármálastofnanir, sérstaklega hjá Evrópusambandinu og jafnvel víðar.
Hv. þingmaður segir að hann styðji að það sé rannsakað sem ég tilgreindi og ég fagna því innilega, það er gott að fá hv. þingmann í lið með okkur þar. Ég mun að sjálfsögðu reyna að nýta mér þann liðsstyrk því að ekki veitir af. Það hefur verið gríðarleg barátta að fá einföldustu upplýsingar og hefur farið ómæld vinna í það. Ég er ekkert verkkvíðinn maður og það er sjálfsagt að vinna mikið en þetta er búin að vera ótrúleg þrautaganga og er gott að fá jafnöflugan þingmann og hv. þm. Skúla Helgason til liðs við okkur í þeirri vinnu.