kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, og lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Þetta er frumvarp sem ég flyt ásamt hv. þingmönnum Valgerði Bjarnadóttur, Höskuldi Þórhallssyni, Álfheiði Ingadóttur, Jónínu Rós Guðmundsdóttur, Davíð Stefánssyni, Lúðvíki Geirssyni og Þór Saari.
Þannig háttar til að frumvarp þetta hefur verið flutt í þrígang áður, á 135., 136. og 137. löggjafarþingi, og er nú endurflutt í sömu mynd.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á annars vegar lögum um kosningar til Alþingis og hins vegar á lögum um kosningar til sveitarstjórna. Gert er ráð fyrir að framboð sem á fulltrúa á Alþingi eða í sveitarstjórn geti tilnefnt áheyrnarfulltrúa í landskjörstjórn og/eða yfirkjörstjórn eigi framboðið ekki kjörinn fulltrúa þar. Gengið er út frá því að strax eftir gildistöku, verði þetta frumvarp að lögum, geti framboð óskað eftir áheyrnaraðild að landskjörstjórn og yfirkjörstjórnum.
Kunnara er en frá þurfi að segja að kosningarrétturinn er einn mikilvægasti rétturinn í sérhverju lýðræðissamfélagi. En lýðræði er þó ekki tryggt þótt kosningarréttur sé til staðar. Við þekkjum mýmörg dæmi um það víða um heim að aðeins einn flokkur hefur fengið að bjóða fram eða — við þekkjum einnig dæmi um það — þar sem ríkjandi stjórnvöldum er tryggður sigur í kosningum með kosningasvindli. Kjörstjórnir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja að kosningar fari rétt og eðlilega fram, þær séu leynilegar og úrslit kosninga séu í samræmi við það sem kjósendur hafa raunverulega kosið. Það má því aldrei verða þannig að kjörstjórnir verði lokaður hópur fulltrúa fárra stjórnmálaflokka, enda þótt þeir njóti stuðnings meiri hluta kjósenda. Starf kjörstjórna er heldur ekki flokkspólitískt, það er fyrst og fremst lýðræðislegs eðlis og því afar þýðingarmikið að tryggja hagsmuni og sjónarmið sem allra flestra innan þeirra. Eðlilegt hlýtur að teljast að allir flokkar eða framboðslistar sem eiga fulltrúa á Alþingi geti tekið þátt í störfum landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna. Hið sama á við um sveitarstjórnarkosningar.
Til að taka á þeim lýðræðishalla sem þessi staða skapar er vafalaust hægt að fara mismunandi leiðir. Ein leið væri að tryggja öllum flokkum að lágmarki einn fulltrúa í hverri kjörstjórn en þá þyrfti væntanlega að fjölga í kjörstjórnum til að tryggja um leið vissan jöfnuð milli flokka eftir stærð þeirra. Sú leið sem hér er lögð til kallar ekki á fjölgun í kjörstjórnunum sjálfum en gefur flokkum og framboðslistum sem fá kjörinn fulltrúa á Alþingi eða í sveitarstjórn, rétt til að tilnefna áheyrnarfulltrúa til starfa með kjörstjórnum. Þannig er tryggt að rödd allra heyrist, og um leið viðurkennt að það er jafnmikilvægt að lítill stjórnmálaflokkur geti á lýðræðislegan hátt fylgst með gangi kosninga eins og stór flokkur.
Eins og ég sagði, virðulegi forseti, hef ég flutt þetta frumvarp þrisvar sinnum áður en það hefur aldrei komist svo langt að komast einu sinni til 1. umr., eins og oft hefur tíðkast í þessari ágætu stofnun með þingmannafrumvörp, en núna er það komið hér á dagskrá. Ég vonast til þess að það fái góða umfjöllun í þingnefnd og vonandi verður það afgreitt.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til 2. umr. og hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.