140. löggjafarþing — 63. fundur,  28. feb. 2012.

vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

466. mál
[18:20]
Horfa

Flm. (Mörður Árnason) (Sf):

Forseti. Ég kem í stólinn í fjarveru 1. flutningsmanns sem er upptekinn af fjölskylduástæðum og getur ekki verið hér að mæla fyrir þessu frumvarpi. Ég vil þakka henni fyrir forustu í þessu efni og vona að hún þurfi ekki að fyrirverða sig fyrir mitt mál.

Frumvarpið er sem sé til breytingar á villidýralögunum sem svo eru stundum kölluð. Því er einkum ætlað að gera þrennt: Því er í fyrsta lagi ætlað að setja seli inn í lögin, selategundir okkar á Íslandi. Því er í öðru lagi ætlað að leyfa selveiðar vegna þess að lögin eru með þeim hætti að öll dýr sem þau eiga við um eru friðuð nema með þeim sérstöku undantekningum sem nefnd eru í lögunum. Því er í þriðja lagi ætlað að skapa griðasvæði fyrir þær selategundir sem veiða má en það er í raun ekki nýjung í íslenskum lögum því að samkvæmt lögum eða tilskipun, eins og það hét, um veiðar á Íslandi frá árinu 1849 þá eru ákveðin griðasvæði til sem ég er hræddur um að við virðum ekki; samkvæmt þessum gömlu lögum líklega frá sama kónginum og gaf út tilskipun nokkrum árum fyrr um stofnun Alþingis í Reykjavík.

Í greinargerð sem er rétt að ég lesi, hún er stutt en efnismikil, segir:

„Selir hafa ekki verið taldir til villtra dýra í lögum sem um þau gilda. Lög sem gilda um seli eru Jónsbókarákvæði frá 13. öld ásamt tilskipun konungs um veiðar á Íslandi frá 20. júní 1849“ — sem ég minntist á áðan. — „Þá er ákvæði um seli að finna í lögum um selaskot á Breiðafirði og uppidráp (nr. 30/1925), lögum um útrýmingu sels í Húnaósi (nr. 29/1937), lögum um lax- og silungsveiði (nr. 61/2006) og landskiptalögum (nr. 46/1941). Samkvæmt lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna (nr. 64/1965) ber Hafrannsóknastofnuninni að afla alhliða þekkingar um hafið og lífríki þess og meta nýtingarmöguleika á auðlindum hafsins. Í lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (nr. 60/1992) er kveðið á um skyldu stofnunarinnar til að vinna að rannsóknum á villtum stofnum spendýra, enda er viðfangsefni Náttúrufræðistofnunar náttúra Íslands gervöll hvernig sem henni er svo skipað í einstaka lagabálka. Heildarlög sem fjalla um vernd og veiðar eru ekki til fyrir seli og fyrir löngu orðið tímabært að setja slík lög enda eiga meginreglur umhverfisréttar og velferðar dýra að gilda um seli líkt og önnur spendýr.“

Það er undarlegt í lögbók okkar að villt dýr skuli teljast öll þau dýr sem villt eru á landi en þegar kemur að sjónum og dýrum sem þar lifa, spendýrum í þessu tilviki, þá gilda allt aðrar reglur og þetta á auðvitað alveg sérstaklega illa við um seli.

„Áður hefur verið reynt að færa lög um seli og selveiðar til nútímans en án árangurs. Frumvarp um selveiðar var lagt fram á Alþingi 1983–1984 en dagaði uppi, og í frumvarpi til gildandi villidýralaga var gert ráð fyrir að lögin næðu til sela, laganna frá 1994. Selaákvæðin í frumvarpinu voru hins vegar felld brott á síðustu stundu, skömmu áður en Alþingi samþykkti lögin vorið 1994. Fram kom í ræðu umhverfisráðherra“ — sem var Össur Skarphéðinsson, sem nú er hæstv. utanríkisráðherra við góðan orðstír — „við 2. umr. að greiða ætti úr málinu sumarið eftir (1994) en úr því varð ekki. Full ástæða er til að flokka sel með öðrum villtum dýrum og láta hann njóta þeirrar verndar sem villidýralögin veita, meðal annars hvað varðar veiðar, og miðar þetta frumvarp að því.

Í frumvarpinu er lagt til að selveiðar verði heimilar áfram enda aldagömul hefð“ — öfugt við t.d. hvalveiðar sem ekki var byrjað að stunda hér fyrr en í kringum aldamótin 1900 — „og hluti af mikilvægum hlunnindum ýmissa bænda. Hvergi mun selveiði þó stunduð sem sjálfstæð atvinnugrein, og viðskipti með selaafurðir eru hverfandi.

Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra geti mælt fyrir um sérstök griðasvæði sela í samráði við Náttúrufræðistofnun, Bændasamtök Íslands og landeigendur. Slík griðasvæði þarf að velja þannig að þau stuðli sem best að viðgangi selastofna en gæta um leið að hæfilegri fjarlægð frá veiðiám og fiskimiðum sem viðkvæmust eru gagnvart ágangi selsins. Í þessu sambandi þarf einnig að taka tillit til hagsmuna sem tengjast ferðaþjónustu, samanber velheppnað selasetur við Húnaflóa. Slík griðasvæði þykja sjálfsögð í grannlöndum okkar, tryggja dýrinu frið frá veiðum og geta jafnframt skapað kjörinn vettvang til selaskoðunar þar sem aðstæður henta.

Samkvæmt gildandi lögum, (tilskipun um veiði á Íslandi frá 1849), má enginn skjóta landsel eða útsel á fjörðum eða víkum þar sem eru látur eða lagnir, nær en 900 m (lög nr. 116/1990). Fiskistofu er þó heimilt að ósk veiðifélags að ófriða látur, að fenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar og Veiðimálastofnunar, en aldrei hefur reynt á það ákvæði. Landselur og útselur njóta því í raun griðasvæða núna samkvæmt lögum þótt þau hafi verið nánast óvirk.

Vöðusel og annan farsel,“ — en með því orði er átt við þá seli sem ekki lifa hér að staðaldri, samanber orðið farfuglar — þá er einkum um að ræða hringanóra, blöðrusel og rostung — „má hver maður hins vegar skjóta eða veiða utan netlaga samkvæmt núgildandi lögum, nema takmarkanir gilda í grennd við selalátur og eggver. Með frumvarpinu yrðu slíkar veiðar óheimilar enda hafa þær ekki verið stundaðar hér síðustu áratugi og væru því engir hagsmunir skertir með samþykkt þessara laga í því tilliti.“

Margt fleira væri hægt að segja um sel og selveiðar í þessari ræðu. Þetta er sannarlega íslensk hefð, eins og áður hefur verið sagt, frá upphafi vega og selurinn er eitt af helstu sambýlisdýrum okkar á Íslandi og við Ísland, það endurspeglast í söguþáttum, þjóðsögum og þjóðtrú sem ég ætla ekki að leyfa mér að rekja í þetta sinn og geymi þar til síðar.

Ég nefni að lokum að sömu flutningsmenn og hér er um að ræða, nefnilega hv. þm. Birgitta Jónsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og ég sjálfur, flytja tvö önnur þingmál af svipuðu tagi, þau eru um hvali. Þetta er eins konar náttúruvillidýraþrenna. Annars vegar er um að ræða þingsályktunartillögu um endurskoðun hvalamála í löggjöf okkar og pólitískri stefnu í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og hins vegar þingsályktunartillögu um griðasvæði fyrir hvali í framhaldi af ályktun frá Samtökum hvalaskoðunarfyrirtækja og annarri ályktun frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Ég vonast til að þessi þingmál komist að þótt síðar verði. Allt eru þetta sjávarspendýr og öll miða þessi þingmál að því að bæta hlut þeirra, að samræma með einhverjum hætti lagalega stöðu villtra dýra á landi og villtra dýra í sjó.

Að lokum, forseti, legg ég til að málið gangi til 2. umr. og hinnar háu umhverfis- og samgöngunefndar.