störf þingsins.
Virðulegur forseti. Auðvitað eigum við að gæta vel að lífeyrissjóðunum okkar og ég tel að ekki megi ganga á þá þó að ég telji um leið að þeir eigi ekki að hafa aukabraskávinning af verðtryggðum íbúðalánum heimilanna eins og þeir gerðu í viðskiptunum í Lúxemborg og eigi að láta þau ganga áfram til skuldaranna.
Hvað varðar of hátt verð á fasteignum þá hefði ég þar mestar áhyggjur af því að óraunhæf skuldsetning á fasteignunum í landinu haldi uppi verði, ég mundi hvetja hv. þingmann til að líta til þess. Það er auðvitað mikilvægt að hér komumst við í raunávöxtun. Það eru meginhagsmunir lífeyrissjóðanna að við komumst í eðlilegt efnahagsumhverfi þar sem raunávöxtun er á fjármagn og að það borgi sig að spara. Það er engu að síður svo að við höfum verið að gera of háa ávöxtunarkröfu á fjármagn, að ég held, með þeim afleiðingum að hér hefur orðið hvert efnahagsáfallið á fætur öðru.
Staðreyndin er einfaldlega sú að helsta viðfangsefni stjórnmálanna um veröld víða er ekki skortur á lánsfé. Helsta viðfangsefni stjórnmála um allan heim er gríðarlegt offramboð á lánsfé. Auðvitað er það svo, og það eru í sjálfu sér ánægjulegar áhyggjur, að eftir því sem auðlegðin vex í veröldinni, eftir því sem fleiri eignast sparifé, eftir því sem þeim fjölgar þeim hundruðum milljónum manna sem notið geta almennra lífskjara, þeim mun meira eykst framboðið og þess lægri verður til lengri tíma ávöxtunin á það fé sem í sjóðunum er. Það er mikilvægt fyrir okkur að gera raunhæfar kröfur í þeim efnum.
Við höfum verið með ávöxtunarkröfur á lífeyrissjóðina 1% umfram áætlaðan langtímahagvöxt og ég tel að verulega megi efast um að það séu réttar forsendur til að reikna stöðu lífeyrissjóðanna okkar á.