afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Frú forseti. Það var almenn skoðun þeirra lögfræðinga sem um þessi mál fjölluðu á sínum tíma að eitt mesta óráðið sem þingið gæti gripið til væri að höfða mál fyrir landsdómi, eitthvert allra mesta óráðið, einmitt af þeirri ástæðu sem við höfum orðið vitni að síðan hugmyndin um málsókn gegn fyrrverandi ráðherrum kom fram.
Ég velti fyrir mér hvort hv. formaður nefndarinnar telji það ekki málefnaleg rök í þessu máli að þingmenn telji að ráðherrann hafi ekki gerst brotlegur við lög. Eru það ekki málefnaleg rök?
Hér hefur einn hæstv. ráðherra tekið þátt í umræðunni á fyrri stigum og sagst hafa skipt um skoðun. Eru það ekki málefnaleg rök þegar hæstv. ráðherra segir að það hafi verið mistök að höfða málið? Það eru svo sannarlega málefnaleg rök sem við hljótum að þurfa að taka tillit til.
Annað atriði sem ég vil gera athugasemd við er þetta: Saksóknari Alþingis hefur aldrei haft það á sinni könnu að meta hvort tilefni væri til útgáfu ákæru. Hann hafði það ekki á fyrri stigum þessa máls og hann hefur það ekki enn í dag þannig að það er algjörlega þýðingarlaust þegar sagt er í nefndaráliti að saksóknari Alþingis telji ekki efni til þess að afturkalla ákæruna. Það er þýðingarlaust vegna þess að saksóknari gerir sér grein fyrir því, sem við öll eigum að vita, að hann fer ekki með ákæruvaldið. Þetta er líka ljóst af úrskurði landsdóms frá því í haust. Það eru ekki sérstök rök að saksóknari telji ekki ástæðu til að afturkalla ákæruna. Þingið fer með ákæruvaldið, þingið hefur valdið og meiri hluti nefndarinnar hefur meira að segja komist að þeirri niðurstöðu í nefndaráliti (Forseti hringir.) að það sé óumdeilanlegt að þingið geti afturkallað ákæruna ef því svo sýnist.