140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[16:39]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Magnúsi Norðdahl fyrir svörin.

Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst þetta sérstakt og ég get ekki verið sammála honum um að í þessu máli þegar landsdómur er annars vegar sé frumkvæðisréttur ákæruvaldsins ekki sá sami eins og ef um eitthvert annað mál væri að ræða, þá væri frumkvæðisréttur ákæruvaldsins fyrir hendi.

Við stöndum frammi fyrir því að ákæra einstakling sem verður hugsanlega dæmdur, verði málið tekið fyrir, til allt að tveggja ára fangelsisvistar. Ef um er að ræða önnur mál, sakamál þar sem fólk er dæmt til fangelsisvistar en frumkvæðisréttur ákæruvaldsins í þeim málum er annar en í landsdómsmálinu, hygg ég að við þurfum að skoða það frekar sem löggjafi, því að þá er fólki mismunað.