140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[16:43]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Magnús M. Norðdahl) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég byggi álit mitt á því sem stendur í meirihlutaálitinu og þar kemur eftirfarandi fram: Meiri hlutinn telur að í ljósi þess að ákæruvaldið er í höndum Alþingis hafi það formlegt vald til að afturkalla ákæru. Það segir ekki að það hafi frumkvæðisréttinn en telur það hins vegar sjálfstætt álitaefni hvort og á hvaða forsendu það geti nýtt sér það vald. Undir það tek ég.

Fullyrt er að allir fræðimenn sem komið hafa fyrir nefndina hafi verið þeirrar skoðunar. Ég minnist þess ekki að allir fræðimenn hafi verið sammála um það eða að nákvæmlega hafi verið farið ofan í það við þá. Sá fræðimaður sem skrifaði einu ritrýndu greinina er Andri Árnason. Hann kom ekki fyrir nefndina.