140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[16:45]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Magnús M. Norðdahl) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að ég vilji halda mig við það að þegar vitnað er í fræðimenn íhugi ég og skoði hvað þeir ágætu fræðimenn hafa sett fram í fræðilegum skrifum sem eru ritrýnd, rökstudd, ég get skoðað heimildir þeirra, ég get farið yfir það sem þeir segja. Þótt menn skrifi í Fréttablaðið eða Moggann einhverjar greinar, hvort sem þeir eru saksóknarar eða ekki, en hafa ekki gefið út nein fræðirit um þessi mál, áskil ég mér allan rétt til að taka ekki mark á slíku. Það eru ekki gögn í málum að vísa í blaðagreinar þó svo að ég sjái að þau hafi verið hengd við nefndarálitin.

Hvað varðar afstöðu saksóknara Alþingis — það er nú ljótt að vera að rifja það svona upp en ef ég man rétt þá held ég að það hafi verið orðað þannig: Ja, ef Alþingi ákveður að falla frá saksókn, þá auðvitað gerir maður það, því hún hlýðir.

Ég er raunar á þeirri skoðun að ef þessi ákvörðun er þess eðlis að hún er brot á stjórnarskrá hafi saksóknari ekki (Forseti hringir.) skyldu til að fara eftir ákvörðun Alþingis, heldur eigi að leita eftir úrskurði um það frá landsdómi.