afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Hæstv. forseti. Þegar þingmannanefndin var að störfum var það eitt af markmiðum hennar og eitt af því mikilvægasta að ekkert bærist út úr henni heldur værum við með þá ábyrgð að fjalla um þetta mál sem við gerðum eins vel og við gátum og lögðum okkur öll fram um það. Ef okkar eigin skoðanir og þær pælingar sem við vorum með, hvort sem það var túlkun þingmannanefndarinnar öll eða að hluta til, hefðu borist út hefði þingmannanefndin ekki náð þeim árangri sem síðar varð og skilað skýrslu og þingsályktunartillögu sem þingið samþykkti 63:0, það þori ég að fullyrða.
Fjóra eða engan. Hv. þingmaður segir að hún hafi aldrei heyrt um þá tillögu. Ég skil það ekki. Það var alltaf þannig í huga mínum og ég var að reyna að útskýra það í ræðunni áðan. Ég sagði það margsinnis og ítrekað við umræðuna í september að til væru aðrar leiðir varðandi hina pólitísku ábyrgð og það hefði verið skynsamlegra ef við hefðum komist að þeirri niðurstöðu að stærri hópur bæri pólitíska ábyrgð. Það gerðist því miður ekki. Þess vegna varð það niðurstaðan að kæra fjóra. Ég hugsaði ekki um það þá hvort við værum að ákæra þá sem hóp eða sem fjóra einstaklinga en mat mitt var að ábyrgð þeirra og samtvinnun í því máli sem við vorum með til skoðunar væri þannig að ákæra ætti fjóra eða engan.