140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[18:36]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla ræðu þar sem hann gat um ýmis vandkvæði sem felast í því að ákæruvaldið er 63 þingmenn, sem geta breyst og breytast nánast frá mánuði til mánaðar. Það koma inn nýir þingmenn o.s.frv. fyrir nú utan það að einhverjir kunna að skipta um skoðun.

Getur ekki verið að hv. þingmaður sé að lýsa þeirri skoðun að landsdómur sé órökréttur, að landsdómur yfirleitt sé órökréttur og gangi bara ekkert upp? Eins og hæstv. forsætisráðherra komst að fyrir nokkrum árum, að lögin um landsdóm væru úrelt, og allar þær vangaveltur sem fyrri lögspekingar höfðu um málið hafi miðast við það að þessi lög yrðu aldrei notuð. Þau séu úrelt og hafi alltaf verið úrelt. Það sést bara strax á því að ákærandinn, þ.e. þessir 63 þingmenn geta skipt um skoðun, það getur skipst um í hópnum o.s.frv. þannig að það er ekki alltaf sami ákærandinn út í gegnum allt málið. Fyrir utan það að við hv. þingmenn vorum settir í þá stöðu, hver og einn, að ákæra vini okkar eða fjendur. Þessi dómstóll fullnægir því sennilega ekki öllum skilyrðum réttarríkisins.