140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[18:40]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni um réttarríkið og hvort þessi dómstóll sé óvilhallur þar sem við erum sett í þá stöðu að ákæra vini okkar og fjendur eftir atvikum, ákæran getur því ekki verið hlutlaus.

Varðandi það að ákærandinn sé breytilegur, þá hlýtur ákærandi í landsdómsmálinu að mega afturkalla ákæru sína eins og allir ákærendur alls staðar. Þeir mega alltaf afturkalla ákæruna ef þeir komast að þeirri niðurstöðu að ekki séu lengur líkindi á því að sakborningur verði sakfelldur, því að það eiga menn alltaf að hafa í huga fyrst og fremst, að það séu meiri líkur en minni á því að sá sem er ákærður verði sakfelldur.