140. löggjafarþing — 64. fundur,  29. feb. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[22:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Telur hv. þingmaður að heimildin til að endurútgefa ákæruna innan þriggja eða sex mánaða eftir atvikum sé bundin við þetta Alþingi eða telur hann að sú heimild mundi líka ná til nýs Alþingis ef það kæmi saman innan tilskilins frests?