140. löggjafarþing — 65. fundur,  1. mars 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá umhverfisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 734, um ræktun erfðabreyttra plantna, frá Þuríði Backman. Það er vegna umfangs fyrirspurnarinnar og óskar ráðuneytið eftir viðbótarfresti til 9. mars til að svara.