140. löggjafarþing — 65. fundur,  1. mars 2012.

tillögur til lausnar skuldavanda heimilanna.

[11:03]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að hæstv. forsætisráðherra er með ákveðna vinnu í gangi um að skoða útfærslu á þessum hugmyndum. Ég vil hins vegar taka fram að svona vinna hefur farið fram áður og allir þingflokkar komu einmitt að málinu en niðurstaðan varð síðan sú að ríkisstjórnin tók einhliða ákvörðun um að fara 110%-leiðina. Í svona vinnu er mjög mikilvægt að ekki sé verið að nota reikningsaðferðir og úttektir til að ýta hugmyndum algerlega út af borðinu, eins og maður upplifði það til dæmis þegar skýrsla Hagfræðistofnunar kom út. Slíkt sé frekar notað sem ákveðnar upplýsingar og gögn sem við höfum til viðmiðunar þegar við tökum ákvarðanir en ekki þannig að menn segi bara: Þetta er ekki hægt. Við eigum frekar að velta fyrir okkur hvað sé hægt að gera og hvernig við getum bætt úr annmörkum sem hugsanlega eru á hugmyndum, en ekki að fara í vinnuna með mjög ákveðnar, gefnar forsendur (Forseti hringir.) eins og mér hefur því miður þótt stundum einkenna aðferðafræði hæstv. forsætisráðherra.