afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Ábyrgð verður að fylgja valdi. Það er enginn sem fer með meira vald en einmitt ráðherra. Því höfum við ráðherraábyrgðarlögin. Það var farið yfir ábyrgð allra ráðherra sem féllu innan fyrningarfrestsins, athafnir og athafnaleysi hvers og eins, og Alþingi greiddi atkvæði og mat athafnir og athafnaleysi hvers og eins í ákærunni. Einn ráðherra var talinn uppfylla skilyrði ráðherraábyrgðarlaganna og var ákærður. Málið er komið til dóms.
Geir H. Haarde mun því svara fyrir sínar athafnir eða athafnaleysi, ekkert annað, sínar athafnir eða sitt athafnaleysi, sína ábyrgð. Engar málefnalegar ástæður hafa komið fram um afturköllun, aðeins „af því bara“. Þessi tillaga hefði aldrei átt að koma hér inn í þingið. (Forseti hringir.) Ég tel að við eigum að sýna þjóð okkar að valdi fylgir í raun ábyrgð. Því ljúkum við þessu máli í landsdómi en ekki hér á Alþingi.