140. löggjafarþing — 65. fundur,  1. mars 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[11:22]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (U) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er ljóslega mikið hjartans mál fyrir marga þingmenn. Ég ber virðingu fyrir því. Ég verð hins vegar að segja að ég á sjálfur svolítið erfitt með að magna upp mikla geðshræringu út af þessu máli, þetta hefur alltaf verið svona frekar skýrt í mínum huga. Málið er komið til landsdóms og ég sé enga ástæðu til að taka það þaðan. Það markaði mína afstöðu í fyrri umferð þessa máls og gerir það núna líka þannig að ég styð frávísun og er á móti því að afturkalla ákæruna.

Ég ætla ekki að dæma í máli Geirs H. Haardes, það gerir landsdómur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)