140. löggjafarþing — 65. fundur,  1. mars 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[11:44]
Horfa

Þráinn Bertelsson (Vg):

Forseti. Mörgum mánuðum fyrir hrunið, sem sumir kalla í sinni afneitun svokallað hrun, tók ég þátt í fjöldafundum úti á Austurvelli sem síðar breyttust í samkomur fyrir utan Alþingishúsið, mótmæli sem voru kölluð búsáhaldabylting. Þar var fólk sem sá fyrir hvert stefndi með ástandið á Íslandi og það horfði skelfingu lostið á stjórnvöld sem brugðust ekki við aðstæðum sem þjóðinni voru augljósar og hættulegar.

Fjöldinn allur af skýrslum hefur verið saminn um þetta mál. Rannsóknarnefnd, þingmannanefnd og nú síðast hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komist að þeirri niðurstöðu að ástæðulaust sé að fikta í þessu máli. Ég vil að réttlætið í þessu landi hafi sinn eðlilega framgang og landsdómur starfi án inngrips frá Alþingi.

Ég segi já.