140. löggjafarþing — 65. fundur,  1. mars 2012.

skýrsla Barnaheilla um vannæringu barna í heiminum.

[12:51]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál og í mínum huga snýst verkefnið um forgangsröðun.

Leiðtogar heimsins hafa æ ofan í æ verið uppteknir við efnahagslega kreppur á meðan fyrir augum þeirra blasir við eymd fjölda barna, hungursneyð, vannæring og annað í þeim dúr. Alþjóðasamfélagið þarf að taka á sig rögg og líta til þessara þátta á sama hátt og litið er til efnahagslegrar kreppu þegar menn ætla að bregðast við ófremdarástandi.

Hvernig getum við gert það? Alþjóðasamfélagið getur að mínu mati beint kröftum sínum betur að ríkjandi stjórnvöldum þeirra landa þar sem vandamálið er stærst. Alþjóðasamfélagið getur með einum og öðrum hætti tryggt fæðuöryggi, tryggt fólki aðgang að hreinu vatni, aðstoðað fólk við að yrkja jörðina til að hefja kornframleiðslu eða einhvers konar matvælaframleiðslu. Þar eru konur gríðarlega stór og mikill áhrifavaldur ef svo mætti að orði komast.

Við getum þakkað frjálsum félagasamtökum fyrir þátt þeirra. Við getum beint augum okkar að því að það skiptir máli að heilbrigðiseftirlit á svæðinu sé í lagi, undirstöðuatriði eins og bólusetning skiptir máli á þessum stöðum. En fyrst og síðast, virðulegur forseti, snýst þetta um forgangsröðun alþjóðasamfélagsins. Ætlar það að setja framtíðina, sem eru börnin hvar í heiminum sem þau búa, í forgang eða eitthvað annað?