samskipti lækna og framleiðenda lyfja og lækningatækja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svör hans. Að mínu mati er mjög brýnt að við ræðum þetta og komumst að einhverri niðurstöðu um það hvernig við viljum haga þessu. Eins og ráðherrann nefndi erum við annars vegar að tala um hvaða reglur við viljum setja þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem starfa hjá hinu opinbera og þiggja greiðslur frá hinu opinbera fyrir þjónustu sína og hins vegar hvernig við viljum tryggja að sú þjónusta sem heilbrigðisstarfsmenn veita á einkastofum sé af þeim gæðum sem við teljum nauðsynleg til að tryggja heilsu viðkomandi sjúklinga.
Ég vil taka fram, svo enginn vafi sé á því, að ég er algjörlega sannfærð um að heilbrigðisstarfsmenn upp til hópa vinna sína vinnu fyrst og fremst út frá hagsmunum sjúklinganna og gæta þeirra dagsdaglega í öllum störfum sínum. Hins vegar koma upp undantekningartilfelli og ég held að þess vegna sé mjög brýnt að þessi umræða sé tekin alveg til enda. Við sjáum það til dæmis að bara þeir peningar sem eru í umferð hjá framleiðendum lyfja og þeir fjármunir sem þeir virðast hafa til ráðstöfunar til markaðssetningar á vörum sínum gera náttúrlega að verkum að mjög mikilvægt er að setja mjög skýrar reglur hvað það varðar. Annars vegar er til sá möguleiki sem ég nefndi hér og sú leið sem Bandaríkjamenn hafa farið, að tryggja að þessar upplýsingar séu að minnsta kosti á yfirborðinu og sjúklingar geti nálgast þær á opinberum vefsíðum eða að við segjum hreinlega: Þetta er eitthvað sem við erum ekki tilbúin til að leyfa, þannig að það sé algjörlega skýrt.
Það er þannig (Forseti hringir.) að menn geta stundum, jafnvel án þess að gera sér fyllilega grein fyrir því, orðið fyrir áhrifum af kynningarstarfi. Þess vegna standa (Forseti hringir.) fyrirtækin í slíku starfi, vegna þess að það hefur að þeirra mati einhver áhrif.
(Forseti (ÁRJ): Forseti minnir enn á ræðutímann.)